Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum minnkar 11. janúar 2007 09:43
Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum minnkaði um eitt prósent í nóvember á síðasta ári, samkvæmt útreikningum sem viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gær. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem dregur úr viðskiptahallanum vestanhafs sem hefur verið í methæðum. Vörur voru fluttar inn til Bandaríkjanna fyrir 183 milljarða bandaríkjadali eða rúmlega 13.200 milljarða íslenskra króna í nóvember en út fyrir 124,8 milljarða dali eða rétt rúma 9.000 milljarða krónur. Þetta jafngildir því að vöruskipti hafi verið neikvæð um 58,2 milljarða bandaríkjadali eða rúma 4.200 milljarða íslenskra króna. Þetta merkir, að viðskiptahallinn hefur ekki verið lægri í Bandaríkjunum síðan í júlí í hitteðfyrra, samkvæmt ráðuneytinu. Minni eftirspurn eftir olíu vestanhafs vegur mikið varðandi samdráttinn en gott veður í Bandaríkjunum hefur leitt til þess að minni olía hefur verið flutt inn en áður auk þess sem olíuverð hefur farið lækkandi síðustu vikurnar.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri Atvinnulíf Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira