Olíuverð ekki lægra síðan árið 2005 10. janúar 2007 14:37
Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði enn frekar í dag vegna góðs veðurfars á norðausturströnd Bandaríkjanna sem hefur orðið til þess að eftirspurn eftir olíu hefur minnkað og olíubirgðir í landinu aukist. Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna birtir vikulegar tölur um olíubirgðir landsins síðdegis og hefur fréttaveitan Bloomberg eftir greinendum vestra að búist sé við auknum olíubirgðum. Verði það raunin er þetta fjórða vikan í röð sem birgðirnar aukast í Bandaríkjunum. Verð á hráolíu, sem afhent verður í næsta mánuði, lækkaði um 1,07 dali eða 1,9 prósent og fór verðið í 54,57 dali á tunnu í rafrænum viðskiptum á markaði í Bandaríkjunum. Verð á Brent Norðursjávarolíu, sem afhent verður á sama tíma, lækkaði um 98 sent eða 1,8 prósent á markaði í Lundúnum í Bretlandi í dag og fór í 54,20 dali á tunnu. Verðið fór í 55,64 dali á tunnu í Lundúnum í gær og hafði það ekki verið lægra síðan 15. júní í hitteðfyrra, að sögn Bloomberg.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Atvinnulíf Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Girnileg pizza úr smiðju BBQ kóngsins Lífið samstarf EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ Viðskipti erlent SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira