Óljóst hverjir eiga þrjátíu milljarða 5. desember 2007 00:01 Vilhjálmur Þór, forstjóri SÍS, og Seved Apelquist skrifa undir samning 1946. Jakob Frímannsson og Bengt Frænkel standa að baki.
Samvinnusjóðurinn verður kjölfestan í þessu. Það er alveg ljóst að hann verður stærstur,“ segir Benedikt Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga. Ákveðið var í sumar að stofna Fjárfestingarfélagið Gift hf. upp úr Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingum. Eigið fé Gift er talið nema um þrjátíu milljörðum króna. Markaðsvirði skráðra félaga á síðari hluta ársins kynni þó að hafa rýrt þá tölu. Samvinnutryggingar voru í sinni tíð svonefnt gagnkvæmt tryggingafélag en í því felst að þeir sem tryggðu hjá félaginu eignuðust þar líka hlut, Hlutur hvers og eins hefur verið bundinn í Eignarhaldsfélaginu, þangað til núna, þegar til stendur að slíta því. Miðað er við að viðskiptamenn sem tryggðu hjá Samvinnutryggingum tvö seinustu starfsárin, 1987 og 1988, eigi hlut í Gift. Einnig þeir sem voru með lögboðna brunatryggingu árin 1992 og 1993. Fram kemur í samþykktum félagsins að réttindi einstaklinga falli niður tveimur árum eftir andlát. Lögaðilar, stofnanir og fyrirtæki hafa þurft að halda óslitnum vátryggingaviðskiptum við Vátryggingafélag Íslands (VÍS).SLITIN GAGNRÝNDFinnur Ingólfsson Fyrrverandi viðskipta- og iðnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins. Var forstjóri VÍS. Situr í fulltrúaráði Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga.„Að mínum dómi átti að slíta Samvinnutryggingum árið 1989 og eigendurnir að fá hluti í VÍS,“ segir Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður. „Ég tel að þeir sem áttu réttindi í Samvinnutryggingum við stofnun VÍS eigi þau enn.“ Sigurður bætir því við að Samvinnutryggingar hafi verið stofnaðar sem samvinnufélag og líta beri á þær sem slíkar.Tryggingastofnar Samvinnutrygginga og Brunabótafélags Íslands voru sameinaðir 5. febrúar árið 1989 og til varð VÍS. Fram hefur komið að um 65 þúsund manns hafi átt eignarrétt í fyrirtækinu þegar það hætti starfsemi.Kristinn Hallgrímsson, formaður skiptanefndar Eignarhaldsfélagsins, segir að ýmis álitamál séu til skoðunar. Ekki verði ljóst hverjir eigi hlut í Fjárfestingarfélaginu Gift fyrr en um eða eftir áramótin. Til stóð að skiptafundurinn yrði haldinn í september.SAMVINNUSJÓÐURINN STÆRSTURÓlafur Ólafsson. Forstjóri Samskipa og aðaleigandi Kers sem átti Olíufélagið.Samvinnusjóðurinn verður stærsti hluthafinn í Gift. Þangað hefur runnið eign þeirra sem tryggðu hjá Samvinnutryggingum en hafa látist eða hætt að tryggja hjá félaginu. Þá hafa líka runnið þangað réttindi fyrirtækja sem orðið hafa gjaldþrota eða hætt að tryggja. Ætla má að um þriðjungur af um þrjátíu milljarða eigin fé Eignarhaldsfélagsins sé á forræði sjóðsins. Sjóðurinn, sem er sjálfseignarstofnun, á að styrkja samfélagsverkefni og almannaheill.„Næststærsti hluthafinn í Gift verður að líkindum Samband íslenskra samvinnufélaga,“ segir Guðsteinn Einarsson, kaupfélagsstjóri í Borgarnesi og stjórnarformaður Sambandsins. Hann bætir því við að Sambandið hafi verið langstærsti tryggingatakinn hjá Samvinnutryggingum og hafi auk þess lagt til stofnfé. Hann geri ráð fyrir því að eignarhlutur Sambandsins í Gift hlaupi á nokkrum milljörðum króna en þó sé erfitt að fullyrða nokkuð um það nú. Ætla má að fleiri fyrirtæki sem eiga uppruna sinn í Sambandinu eignist nokkurn hlut í Gift. Til að mynda félög sem tengjast Ólafi Ólafssyni, stjórnarformanni og helsta eiganda Samskipa.VENJULEGUR TRYGGJANDI FÁI 100.000Valgerður Sverrisdóttir Fyrrverandi viðskipta- og iðnaðarráðherra. Varaformaður Framsóknarflokksins. Situr í fulltrúaráði Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga.Um 50 þúsund aðilar, einstaklingar og fyrirtæki, eignast hluti í Gift. Af þeim tuttugu milljörðum króna sem skiptast milli tryggjenda má ætla að SÍS fái mest, hugsanlega milljarða, en síðan fái önnur fyrirtæki sem eiga rætur að rekja til SÍS umtalsverða hluti. Fram hefur komið að venjuleg fjölskylda sem tryggði hús, innbú og bíl geti gert ráð fyrir að fá um 100 þúsund króna hlut í Fjáfestingarfélaginu Gift. Þessar upplýsingar eru óstaðfestar. Sé gert ráð fyrir að flestir í hópi tryggjenda hafi verið venjulegar fjölskyldur, má ætla að þær fái um fimm milljarða króna af hinum þrjátíu milljarða sjóði. Á milli 20 og 25 milljarðar af eigin fé fyrirtækisins verði hins vegar í höndum Samvinnusjóðsins, Sambands íslenskra samvinnufélaga og fleiri fyrirtækja. Benedikt Sigurðsson, framkvæmdastjóri Samvinnutrygginga, bendir á að hæpið sé að fullyrða nokkuð um þetta, þar sem endanleg skipti liggi ekki fyrir.Hver ræður?„Þarna gengur eitthvert sjálfala fulltrúaráð en félagsmenn hafa lítil áhrif á þetta,“ segir Sigurður G. Guðjónsson, um stjórnun Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga. 24 manna fulltrúaráð félagsins, sem hefur haft með höndum að velja stjórn félagsins og taka meiri háttar ákvarðanir á aðalfundum, velur sig sjálft.Þangað til fyrir fimm árum var fulltrúaráðið kosið á aðalfundi Sambands íslenskra samvinnufélaga. Sigurður spurði í grein í Morgunblaðinu í sumar hvort allir gætu mætt á aðalfundi eða hvort þeir væru aðeins fyrir fáa útvalda. Fundurinn þar sem slit félagsins voru ákveðin var haldinn á föstudegi, en boðað var til hans með auglýsingu í Morgunblaðinu á þriðjudegi í sömu viku.Gísli Jónatansson, varaformaður Sambands íslenskra samvinnufélaga og kaupfélagsstjóri á Fáskrúðsfirði, skrifaði í Morgunblaðið í sumar að í heilt ár hefðu tryggjendur, undir forystu stjórnar sambandsins, reynt að hafa áhrif á ákvarðanir um fjármuni Samvinnutrygginga. Það sé alveg ljóst að það hafi aldrei verið hugsun þeirra sem stofnuðu félagið á sínum tíma að sjálfskipað fámennt fulltrúaráð kæmist í slíka valdastöðu. Það hefði verið sjálfsögð og eðlileg kurteisi við tryggingatakana að boða þá til fundar og kynna þeim réttarstöðu sína. Þórólfur Gíslason, stjórnarformaður Eignarhaldsfélagsins, sagði í sumar að ekki hefði verið hægt að boða félagsmenn til aðalfundar því eign þeirra hefði aldrei verið virk.
Undir smásjánni Mest lesið Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Viðskipti innlent Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Atvinnulíf Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Viðskipti innlent Fá veglegan styrk og innleiða Bara tala í alla framhaldsskóla Viðskipti innlent Framsækin og ört vaxandi rafmagnsverkfræðistofa Framúrskarandi fyrirtæki Valhöll seld en óvíst með framhaldið Viðskipti innlent Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Viðskipti erlent Fjögur ráðin til Cirkus auglýsingastofu Viðskipti innlent Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Fá veglegan styrk og innleiða Bara tala í alla framhaldsskóla Fjögur ráðin til Cirkus auglýsingastofu Valhöll seld en óvíst með framhaldið Kínverjarnir selja sig út úr Elkem Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð „Laxaveisla á Íslandi“ og útlit fyrir umtalsverðan vöxt í framleiðslu Spá því að verðbólga fari strax undir fimm prósent Tollgæslustjóri hafi lofað MS tollflokkuninni umdeildu Bræður selja Vagna og þjónustu eftir 40 ára rekstur Stjórn vill greiða fimmtán milljarða í arð Bein útsending: Menntadagur atvinnulífsins Byrja að fljúga til Tromsø og oftar til Bergen Þórður Már til Faxaflóahafna Fanney tekur við af Erni hjá Lex „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Óli Páll til APRÓ Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Sjá meira