Umræðan sýndi að aðgerða væri þörf 7. febrúar 2007 06:00 Erlendur Hjaltason formaður og Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, sem leitt hefur upplýsandi umræðu um íslenskt viðskipta- og efnahagslíf. Núna horfa þau til framtíðar í ímyndarmálum landsins. MYNND/GVA
Ákvörðun Viðskiptaráðs um að beita sér fyrir umræðu um ímynd Íslands og velta upp hugmyndum um hvort þar mætti halda betur á er tekin í kjölfar þeirrar orrahríðar sem íslenskt efnahagslíf og fjármálafyrirtæki urðu fyrir í byrjun síðasta árs. Ljóst var síðsumars að skýrsla Frederics Mishkins og Tryggva Þórs Herbertssonar um íslenskt efnahagsumhverfi sem Viðskiptaráð lét einnig gera markaði þáttaskil í umræðu sem oft á tíðum hafði einkennst af vanþekkingu og misskilningi. Þeirri skýrslu var ætlað að slökkva elda, en Viðskiptaráð vildi líka huga að forvörnum. „Bakgrunnur þess að við völdum þetta efni á Viðskiptaþingið er sú erfiða staða sem við lentum í síðastliðinn vetur, í febrúar, mars, í umfjöllun um íslensk fyrirtæki og viðskiptalíf,“ segir Erlendur Hjaltason, formaður Viðskiptaráðs. „Þá var hver að svara í sínu horni, en ekkert samstillt átak um hvernig bregðast ætti við aðstæðum eins og þessum.“ Erlendur segir að hann og Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, hafi sest niður til vangaveltna um hvernig best væri að bregðast við og kallað til ráðgjafar valinkunna menn. „Svo var farið í að kalla eftir Mishkin skýrslunni.“ „Viðskiptaráð naut í þessum aðgerðum sínum að vera nokkurs konar hlutlaus aðili sem kallaði eftir sérfræðiáliti, en óvíst er að skýrsla um íslenskt efnahagslíf frá bönkunum hefði haft jafn mikil áhrif eða notið sama trúverðugleika,“ bendir Halla á, en næsta skref hafi svo verið að hyggja að forvörnum og hvernig haga bæri kynningarmálum til langframa. „Þannig fórum við að vinna það mál áfram og komumst í samband við Simon Anholt og settum saman þennan stýrihóp um ímyndarmálin sem í eiga sæti ráðherrarnir Geir H. Haarde, Valgerður Sverrisdóttir, Jón Sigurðsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Síðan vorum við sex úr atvinnulífinu,“ segir Erlendur, en auk hans sjálfs tóku þátt Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, Skarphéðinn Berg Steinarsson, framkvæmdastjóri norrænna fjárfestinga hjá Baugi, Svafa Grönfeldt sem þá var hjá Actavis, Margrét Pála Ólafsdóttir skólastjóri og Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. „Þessi hópur kom saman rúma þrjá hálfa daga í senn og velti upp hugmyndum um hvernig best væri að haga málum,“ segir Erlendur, en að auki vann svo Simon Anholt rannsókn sína sem kynnt verður á þinginu í dag. „Í henni er fjallað um hvernig aðrar þjóðir sjá okkur. Verkefnið er hins vegar okkar allra. Það ræður ekkert eitt fyrirtæki við þetta eða stjórnvald. Verkefnið er sameiginlegt,“ segir Erlendur. Halla tekur undir með Erlendi og segir ljóst að ímyndarvinna þjóðar verði ekki unnin í aðskildum hópum lengur líkt og verið hafi. „Ferðamálaráð hefur unnið að því að markaðssetja Ísland með ímynd sem kannski er nokkuð mikið tengd náttúrunni,“ segir hún og upplýsir að rannsókn Simons Anholts sýni einmitt að Ísland eigi það sem kalla mætti „inneign“ hjá öðrum þjóðum en þeim sem kannski standa okkur næst fyrir einmitt kynningu á náttúrunni. „Minna er hins vegar vitað um hvers konar þjóð við erum eða jafnvel að einhvers misskilnings gæti í þeim efnum. Þegar dregin er svo upp af okkur skökk mynd í erlendum fjölmiðlum í tengslum við einhverja neikvæða tímabundna umfjöllun, þá er það kannski sú ímynd sem nær að stimplast inn,“ bætir hún við. En þurfum við í rauninni ímynd? Ekki nokkur spurning segir Halla. „Við teljum að það skipti öllu máli,“ segir hún og bætir við að horfa þurfi fram á veginn og spyrja spurningarinnar: Hvernig ættu hlutirnir að vera? „Við teljum að byrja þurfi á að finna skýra stefnu. Við getum ekki bara farið í einhverja auglýsingaherferð, enda hafa þjóðir í raun engan rétt á því. Þjóð á að setja sér stefnu um hvernig hún ætlar að vera og svo á öll nýsköpun að vera í takt við þá stefnu. Við þurfum að ná samstöðu um stefnuna og finna henni eitthvað eitt heimili til framkvæmda.“
Undir smásjánni Mest lesið Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Viðskipti innlent Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Atvinnulíf Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Viðskipti innlent Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð Viðskipti innlent Fá veglegan styrk og innleiða Bara tala í alla framhaldsskóla Viðskipti innlent Valhöll seld en óvíst með framhaldið Viðskipti innlent Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Viðskipti erlent Framsækin og ört vaxandi rafmagnsverkfræðistofa Framúrskarandi fyrirtæki Fjögur ráðin til Cirkus auglýsingastofu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Fá veglegan styrk og innleiða Bara tala í alla framhaldsskóla Fjögur ráðin til Cirkus auglýsingastofu Valhöll seld en óvíst með framhaldið Kínverjarnir selja sig út úr Elkem Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð „Laxaveisla á Íslandi“ og útlit fyrir umtalsverðan vöxt í framleiðslu Spá því að verðbólga fari strax undir fimm prósent Tollgæslustjóri hafi lofað MS tollflokkuninni umdeildu Bræður selja Vagna og þjónustu eftir 40 ára rekstur Stjórn vill greiða fimmtán milljarða í arð Bein útsending: Menntadagur atvinnulífsins Byrja að fljúga til Tromsø og oftar til Bergen Þórður Már til Faxaflóahafna Fanney tekur við af Erni hjá Lex „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Óli Páll til APRÓ Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Sjá meira