Tuttugu ár frá morðinu á Olof Palme 28. febrúar 2006 13:15 Olof Palme, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar.
Í kvöld verða nákvæmlega tuttugu ár síðan Olav Palme, þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, var myrtur í miðborg Stokkhólms. Rannsókn á morðinu er komin í fullan gang á ný og margir verða yfirheyrðir vegna þess á næstunni. Palme var að koma úr kvikmyndahúsi rétt fyrir miðnætti þegar hann var skotinn tvisvar sinnum í magann og lést á leiðinni á sjúkrahús. Kona Palme fékk skot í bakið og slasaðist alvarlega. Þó að tveir lífverðir hafi jafnan gætt Palme í opinberum erindagjörðum kaus hann að njóta ekki starfskrafta þeirra þegar hann sinnti eigin erindagjörðum. Enginn hefur verið sakfelldur fyrir morðið á Palme og morðvopnið hefur aldrei fundist, þrátt fyrir eina umfangsmestu lögreglurannsókn sem gerð hefur verið. Fjölmargir verða yfirheyrðir á ný eftir að nýjar upplýsingar um morðið á Olof Palme komu fram í sænskri heimildamynd sem sýnd var um helgina. Í myndinni kom fram að sænskur lögreglumaður væri flæktur í málið og að Palme hefði verið myrtur í misgripum. Palme er minnst sem hugsjónamanns sem barðist fyrir verkalýðinn og lét verulega til sín taka í málefnum fátækari ríkja heims. Þá var hann líka mikill friðarsinni og barðist fyrir endalokum Víetnamstríðsins.
Morðið á Olof Palme Svíþjóð Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Sjá meira