Fallist á kröfu aðstandenda 31. desember 2006 00:30 Jónas sést hér við sambærilegan bát og þann sem nú er í löggeymslu. MYND/GVA
Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur fallist á kröfu aðstandenda Matthildar V. Harðardóttur og Friðriks Á. Hermannssonar, sem létust er skemmtibáturinn Harpa steytti á Skarfaskeri í september í fyrra, um að eignir Jónasar Garðarssonar verði teknar í löggeymslu á grundvelli niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá 6. júní 2006. Sýslumaðurinn féllst á ábendingu lögmanns aðstandenda um að skemmtibátur Jónasar, sá hinn sami og steytti á Skarfaskeri, yrði í löggeymslu þar til dómur Hæstaréttar liggur fyrir í málinu. Jónas var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi og fyrir að hafa stýrt bátnum er slysið varð undir áhrifum áfengis. Dómur Jónasar er þyngsti dómur sem fallið hefur hér á landi fyrir brot af þessu tagi. Óljóst er enn hvenær málið verður tekið fyrir í Hæstarétti en Jónas áfrýjaði niðurstöðu héraðsdóms. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Hæstaréttar er líklegast að málið verði tekið fyrir í mars eða apríl en málið er ekki komið á dagskrá Hæstaréttar. Jónas neitaði því fyrir dómi að hafa stýrt bátnum er hann steytti á skerinu en fjölskipaður dómur komst að þeirri niðurstöðu að Jónas hefði verið við stýrið.“
Sjóslys á Skarfaskeri Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Umbóta þörf til að halda uppi lífsgæðum á Íslandi að mati OECD Innlent Hvar er Khamenei? Erlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira