Kakkalakkar í húsgögnum og hurð drepur hund 6. nóvember 2006 07:00 Kakkalakki, ekki vandamál í Reykjavík.
Öll heyrum við flökkusögur einhvern tíma á lífsleiðinni. Þetta eru krassandi sögur í ólíkindadúr, sumar hafa gengið marga hringi og birtast aftur og aftur með hverri nýrri kynslóð. Yfirleitt eru „pottþéttar“ heimildir fyrir sögunum, vinur vinar eða einhver í mötuneytinu. Tvær nýjustu flökkusögurnar á Íslandi tengjast kakkalökkum og hættulegum hurðum. En er eitthvert sannleikskorn í þeim? Kaninn er farinn. Það er engin flökkusaga. Flökkusagan er hins vegar sú að stórir amerískir kakkalakkar eiga að hafa fundist víða í Reykjavík upp á síðkastið. Með sögunni fylgir að fólkið sem kakkalakkarnir finnast hjá á það eitt sameiginlegt að hafa nýlega keypt húsgögn hjá Sölu varnarliðseigna í gamla Blómavalshúsinu. „Þetta er algjör vitleysa!“ fullyrðir Ólafur Sigurðsson meindýraeyðir. „Það er samt fullt af fólki sem hefur hringt í mig út af þessu til að spyrja hvort þetta sé satt. Flökkusagan er því greinilega útbreidd. Það hafa ekki komið upp nein kakkalakkamál hér á höfuðborgarsvæðinu lengi og ég segi þessu fólki að strjúka bara yfir þessi húsgöng með sápuvatnsblautri tusku og passa að þrífa vel kverkarnar.“ Ólafur hefur unnið á Keflavíkurvelli og segir kakkalakkavandamál þar mun sjaldgæfari en fólk heldur. „Kaninn var með mjög gott prógramm og vann allt eftir ströngustu stöðlum hersins. Ef kakkalakkamál komu upp, sem kom fyrir, var ekki hætt fyrr en búið var að leysa málið og útrýma kvikindunum. Þeir sem tóku við húsunum þarna gengu því miður ekki inn í sama gæðakerfi, svo þetta gæti kannski orðið eitthvað mál seinna.“ Annar meindýraeyðir, Jón Halldórsson, tekur í sama streng og Ólafur. Hann segist bara einu sinni hafa þurft að vinna í máli í Reykjavík þar sem amerískir kakkalakkar komu við sögu. „Það var reyndar löngu fyrir tíma þessarar varnarliðseignaverslunar,“ segir hann. Ameríski kakkalakkinn er um fjórir sentimetrar á lengd og því mun stærri en evrópska tegundin sem sjaldnast fer yfir einn sentimetra. „Það er algengara að það komi upp mál þar sem minni tegundin kemur við sögu,“ segir Jón, „en það hefur ekkert með Kanann að gera. Þá er frekar um að ræða að óværan laumar sér með í búslóð þegar fólk er að flytja heim frá hlýrri löndum.“ Önnur flökkusaga sem nú heyrist oft fjallar um sjálfvirku snúningshurðirnar sem bæði má finna í Smáralind og Kringlunni. Sagan segir að þessar hurðir séu stórhættulegar og að algengt sé að smáhundar hreinlega kubbist í sundur í þeim. Þetta er satt, en sagan hefur vaxið gífurlega í munnlegri geymd. Ekki er nema um einn hund að ræða og hann „kubbaðist ekki í sundur“ eins og flökkusagan segir heldur sást varla á honum eftir að hann hálsbrotnaði. Þetta var hvolpur af kavalier-tegund sem var kallaður Ljóni. Stúlka sem var með hann fyrir utan norðurhlið Smáralindar lenti þar í samræðum við vinkonu sína. Slaki var á bandinu og Ljóni greyið tók upp á því að elta fólk sem var á leið inni í Smáralindina. Þegar að hurðinni kom vildi svo illa til að hundurinn lenti á milli ytra og innra glers á snúningshurðinni og hlaut bana af. Þetta gerðist í ágúst árið 2003 og ekki hafa orðið fleiri slys á smáhundum né öðrum gæludýrum í Smáralind svo vitað sé.
Innlent Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Innlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira