Engir símhlerunarúrskurðir vegna þjóðaröryggis frá 1976 18. október 2006 06:30
Engir dómsúrskurðir hafa verið kveðnir upp síðustu þrjá áratugina þar sem símhleranir hafa verið heimilaðar á þeim forsendum að öryggi ríkisins sé hætta búin, að sögn Helga I. Jónssonar, dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur. Ef íslenskir ráðamenn hafa verið hleraðir, líkt og Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur haldið fram ásamt Árna Páli Árnasyni, fyrrverandi starfsmanni utanríkisráðuneytisins, á síðustu þremur áratugum, hafa þær farið fram án dómsúrskurðar og væru því lögbrot. Jón Baldvin skýrði frá því í gær að starfsmaður Pósts og síma, sem varð vitni að því að sími Jóns Baldvins var hleraður í utanríkisráðherratíð hans, hafi lagt fram vottfesta staðfestingu á framburði sínum hjá lögmanni. Jón Baldvin segir jafnframt að starfsmaðurinn muni vitna þar um við rannsókn málsins. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur skýrði síðastliðið vor frá niðurstöðum úr rannsóknum sínum á skriflegum heimildum um símhleranir á árunum 1946 til 1976. Þar kom fram að stjórnvöld létu meðal annars hlera síma íslenskra sósíalista, þar á meðal nokkurra þingmanna. Voru þær hleranir allar framkvæmdar samkvæmt dómsúrskurði.
Innlent Mest lesið Fjöldi fórnarlamba eftir skothríð og íkveikju í kirkju mormóna Erlent Skora á Snorra að gefa kost á sér Innlent „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ Innlent Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Erlent Banna dróna yfir Danmörku Erlent Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Innlent Með bílinn fullan af fíkniefnum Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Innlent Lögreglan með málið til rannsóknar Innlent Fleiri fréttir 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Allt niður í þriggja mánaða fiðluleikara „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ „Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Umfangsmiklar árásir og símengað neysluvatn Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Geirfinnsmálið, orkuöflun, gjaldeyrishöftin og íslenskan á Sprengisandi Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Sjá meira