Vilja landið til baka 3. október 2006 06:00 Með ruslahaugana í baksýn Leifur Ölver Guðjónsson, íbúi í Austur-Stafnesi í Sandgerði, segir að rusl hafi fokið úr haugnum og fuglinn hafi borið bein út um allt hraun. MYND/Víkurfréttir
Herinn var með radarskerma rúman kílómetra frá bænum Austur-Stafnesi í marga áratugi og ruslahaug í svipaðri fjarlægð. Landeigendur fengu aldrei notið þess umgengnisréttar um landið sem þeir áttu. Mótmæli höfðu ekkert að segja. Leifur Ölver Guðjónsson, landeigandi í Austur-Stafnesi, segir að sambýlið við herinn hafi gengið „upp og ofan. Það var stundum yfirgangur. Menn voru handteknir með byssukjafta yfir sér og það var aldrei hægt að nýta rekann vegna þess að þeir voru með landið og létu menn ekki í friði.“ Ruslið fauk úr ruslahaug hersins í Stafnesi í áratugi og var íbúum til ama. Leifur segir að fuglinn hafi borið ruslið „út um allt hraun þannig að þetta var ekkert voðalega skemmtilegt.“ Þá var menguðum jarðvegi af Nikkelsvæðinu sturtað í Stafnesi. Landeigendur vilja fá landið til baka en þeir hafa nú aðeins um fimm prósent upprunalegu jarðarinnar til umráða. Leifur Ölver segir landið gott undir sumarbústaði og heilsárshús. „Þetta er stutt frá þéttbýlinu og fólk kemur mikið hingað til að rölta í fjörunni. Ég held að fólki myndi líða ágætlega hér og komast aðeins út úr skarkalanum.“
Innlent Mest lesið Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Erlent Með bílinn fullan af fíkniefnum Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent Lögreglan með málið til rannsóknar Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Segist hafa hafnað boði til einkaeyju Epsteins Erlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Innlent Vill fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn Erlent „Það verður boðið fram í nafni VG“ Innlent Fleiri fréttir Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Geirfinnsmálið, orkuöflun, gjaldeyrishöftin og íslenskan á Sprengisandi Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Sjá meira