Stundaði svakalega sjálfsritskoðun 25. september 2006 01:00 Ómar Ragnarsson sjónvarpsfréttamaður
Ómar Ragnarsson sjónvarpsfréttamaður segist hafa þurft að stunda „svakalega sjálfsritskoðun“ og leggja sig svo mikið fram við það upp á síðkastið vegna þrýstings utan frá að hann geti ekki staðið í því lengur. Þess vegna hafi hann hætt að fjalla um umhverfismál í sjónvarpsfréttum. „Ég hef fengið það alveg skýrt að ég hef staðið fullkomlega að verki fyrir Fréttastofuna og Sjónvarpið,“ segir Ómar. „Ég er bara undir svo mikilli smásjá almennings og þeirra sem hafa áhrif að það er miklu hreinna að gera þetta svona.“ Ómar segir að það sé að sjálfsögðu alltaf hætta á því að fréttamenn myndi sér skoðun á grundvelli þess að þeir þekki málin vel eftir að hafa sökkt sér ofan í þau. Þeir verði því að gæta þess eins og sjáaldurs auga síns að það komi hvergi fram. „Ég treysti mér ekki til þess lengur.“ Ómar kveðst hafa fengið gríðarleg viðbrögð við frumkvæði sínu, margir hafi talað við sig og sumir stjórnmálamenn. „Ég set þetta fram, nú vil ég leggja baráttunni lið með því að ræða við þá sem eru í stjórnmálum um það hvernig þessum sjónarmiðum er best komið í kosningabaráttu. Ég er bara að byrja.“
Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fleiri fréttir Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Sjá meira