Eigandinn náði að stökkva út úr logandi bifreiðinni 21. september 2006 06:00 Eldur slökktur í bifreiðinni Fimm bifreiðar skemmdust þegar sprengja sprakk. MYND/AP
Nokkrir særðust þegar mikil sprenging varð rétt hjá Vasatorgi í miðborg Gautaborgar í hádeginu í gær. Sprengja sprakk í bifreið, sem gjöreyðilagðist auk þess sem eldur kviknaði í fjórum öðrum bifreiðum. Sænskir fjölmiðlar segja að sprengjutilræðið hafi beinst gegn eiganda bifreiðarinnar, sem er sagður starfa við veitingahúsarekstur í borginni. Maðurinn slapp ómeiddur, en hann stökk út úr bifreiðinni strax og sprengingin varð. Fjölmörg vitni urðu að sprengingunni og var mörgum mjög brugðið. Nokkrir fengu í sig glerbrot og flísar. Einn maður var fluttur á sjúkrahús. Mikill eldur logaði í bifreiðinni og stóðu eldtungurnar nokkra metra upp í loftið og bárust með vindi í fleiri bifreiðar, en vel gekk að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á staðinn. Þetta er í annað sinn í þessari viku sem sprengja springur í Gautaborg. Á þriðjudaginn varð sprenging í leigubíl í einu af úthverfum borgarinnar, en enginn slasaðist. Handsprengju hafði verið komið fyrir við eitt af hjólum bifreiðarinnar. Lögreglan í Gautaborg segist hafa grun um að tengsl séu á milli sprenginganna.
Erlent Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Erlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Sprengdu næst stærstu olíudælustöð Rússlands Erlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Keyrði aftan á strætisvagn Innlent Fleiri fréttir Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Sprengdu næst stærstu olíudælustöð Rússlands Sautján ára og í leit að peningum fyrir spöngum „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Rufu einangrun jaðarhægrisins til að afnema umhverfisreglur Enginn ákærður eftir umdeilt þrjú hundruð manna áhlaup Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Vilja ekki feita innflytjendur Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu BBC biður Trump afsökunar en hafnar bótakröfu Eldar í nær öllum hverfum eftir árásir Rússa á Kænugarð Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Sjá meira