Öryggið orðið óþægilega mikið 14. ágúst 2006 07:30 Rauðvínið í ruslið Öryggisvörður á alþjóðavellinum í San Francisco framfylgir nýjum reglum. Talið er að fríhafnarverslun verði ekki í sömu mynd og hingað til. MYND/AP
Verða vopnaðir verðir helstu ferðafélagar okkar í framtíðinni? Nýjar ógnir í loftferðum gera það að verkum að óþægindi ferðalanga hafa aukist til muna, sérstaklega í ferðum sem tengjast Bretlandi og Bandaríkjunum. Erfitt er að segja til um hversu lengi svo verði í pottinn búið, en nú þegar heyrast óánægjuraddir. Eftir hrun Tvíburaturnanna hinn 11. september 2001 var allt eftirlit með farþegum og föggum þeirra aukið til muna. Íslenskir farþegar sem átt hafa leið um Bandaríkin eftir að „stríðið gegn hryðjuverkum“ hófst hafa margir hverjir kvartað undan bandarískum landamæra- og öryggisvörðum og jafnvel sakað þá um vænisýki og valdníðslu. En enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Eftir atburði síðustu viku hefur öryggisgæsla á alþjóðaflugvöllum orðið svo ströng að allur handfarangur er forboðinn í flugi, utan lífsnauðsynleg lyf og barnamjólk. Farþegum er gert að geyma það litla sem leyft er um borð í glærum plastpoka. Allir skulu fara úr skónum og horfa á eftir þeim í gegnum röntgenvél. Líkamsleit á farþegum er orðin mun algengari en hún hefur verið hingað til. Og þessar varúðarráðstafanir eru ekki bundnar við Bandaríkin ein. Þær snerta alla farþega sem millilenda í Bretlandi og víðar í heiminum.Held ég gangi heimLangar biðraðir við völlinn Þetta gæti orðið kunnugleg sjón í nánustu framtíð, eða þangað til að nýjar leiðir finnast til nákvæmari og fljótlegri sprengjuleitar. Fréttablaðið/apMeirihluti farþega tekur öryggisráðstöfunum með ró og langlundargeði, því þær eru þeim jú í hag. En óánægjuraddirnar heyrast einnig og gerast æ háværari. Fæstum þykir lengur sérstaklega gaman að ferðast með flugi þegar ferðalagið hefur í för með sér yfirheyrslu um persónulega hagi, líkamsleit og langa bið á mannmörgum flugvöllum. Á sumum leiðum má ekki einu sinni lesa í bók, hvað þá meira. Einn farþegi á Englandi sagði í síðustu viku að erfiðasti þáttur flugsins hefði verið sá að þurfa að sitja kyrr í átta tíma án þess að nota iPod-tæki. Annar formælti ástandinu hreint út og sagðist ætla að ganga meira í framtíðinni.Einnig má spyrja um fríhafnirnar, sem stundum þykja hápunktur stuttra vinnuferða. Miðað við núverandi fyrirkomulag er framtíðin ekki sérlega björt hjá fríverslunarmönnum, því á mörgum flugleiðum má ekki lengur taka með sér sælgæti eða áfengi eða nokkuð annað um borð. Framtíðarsýn flugvallarmenningar er kannski sú að vellirnir verði múraðir inni af digrum varnarveggjum og á þeim verði einungis langar raðir manna í öryggisskoðun, gætt af vörðum gráum fyrir járnum; öryggismyndvél í hverju horni.Von um betri tíðAllur Handfarangur Bannaður Þessa muni þurftu farþegar sem áttu leið um alþjóðavöllinn í Los Angeles að skilja eftir. Fréttablaðið/apÖryggissérfræðingar eru sammála um að við óbreytt ástand verði ekki lengi unað. Flestir vilja hafa það á tilfinningunni að þeir séu frjálsir þegnar á meðan þeir ferðast, en ekki „hugsanlegir hryðjuverkamenn“ í stöðugri rannsókn hjá fluglögreglunni.Christopher Langton, sérfræðingur í hryðjuverkastarfsemi, telur að brátt krefjist farþegar „leyfis til að ferðast sem frjálsar manneskjur á ný“. Gæslumenn taka í sama streng og vonast til að geta beint eftirlitsaugum sínum sérstaklega að þeim flugleiðum sem hættulegar þykja og reyna að gera aðrar hættuminni flugferðir þeim mun þolanlegri á ný. Vandinn er þó sá að umferð um alþjóðaflugvelli er gífurleg á degi hverjum. Margar milljónir manna fara í hverjum mánuði um stærri velli og öryggi farþega verður, eftir sem áður, sett ofar þægindum. Því eru vonir bundnar við nýja tækni sem geti flýtt fyrir innritun og komið að einhverju leyti í stað líkamsleitar. Til er nýr tæknibúnaður sem nemur helstu gerðir sprengjuvökva, líkt og málmleitartæki nema málm. Þau eru hins vegar enn á tilraunastigi á flugvöllum og verða um einhverja tíð. Því er bara að bíða og vona að vökvabannið verði ekki jafn langlíft og reykingabannið.
Erlent Mest lesið Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Innlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Ákærður fyrir fjórar nauðganir Erlent Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Innlent „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Erlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Sjá meira