Yfirgáfu deyjandi mann 20. júlí 2006 06:30 Mark Inglis Hlaut heimsfrægð fyrir að verða fyrsti fótalausi maðurinn til að klífa Everest. Hann og fjörutíu aðrir gengu framhjá deyjandi manni. MYND/AP
Nýsjálendingurinn Mark Inglis varð í maí fyrsti maður heims til að ganga á tind Everest á tveimur gervifótum og hlaut hann heimsfrægð fyrir. En nú hefur komið fram að hann, auk um fjörutíu annarra fjallafara, gekk framhjá deyjandi manni og skildi hann eftir þó augljóst hlyti að vera í hvað stefndi, enda var nærri 40 stiga frost á tindinum. Hinn 34 ára gamli David Sharp sat kalinn í snjónum og tilkynnti þeim sem stoppuðu nafn sitt og með hverjum hann ferðaðist, og sagðist síðan vilja „bara sofa“. Ferðafélagar hans segja hann hafa gefist upp á ferðinni og haldið einn til baka á meðan hinir héldu áfram upp. Hann var kalinn á höndum upp að olnbogum og á fótum upp að hnjám og nef hans og kinnar voru svört af kali þegar Inglis kom að honum, samkvæmt fréttavef danska blaðsins Politiken. Inglis hefur verið sakaður um að hafa ekki brugðist við. Upphaflega sagðist hann hafa kallað eftir hjálp í gegnum talstöð, en sá sem hann á að hafa kallað til segir Inglis fara með ósannindi. Ellefu manns fórust á Everest í vor, sem gerði það mannskæðasta vorið frá árinu 1996.
Erlent Mest lesið Umdeildur skólastjóri í leyfi á meðan úttekt er gerð Innlent „Ég er sá sem getur fellt hann“ Erlent Moskító mætt á Suðurland Innlent Sakfelldur fyrir morð og refsing þyngd verulega Innlent Hafi kallað drenginn „grenjuskjóðu“ Innlent Bera ábyrgð á þjófnaði gámsins en sleppa með skrekkinn Innlent Þorleifur Kamban er látinn Innlent Hellti bjór yfir slasaðan hjólreiðamann sem lá í götunni Innlent Starfsmaður Múlaborgar játar sök að hluta Innlent Þreyttir íbúar Grjótaþorpsins fá einstefnu Innlent Fleiri fréttir Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Krefjast tvö þúsund ára fangelsisdóms yfir borgarstjóranum Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Grænlenskir góðmálmar og seinagangur bankanna Sprengdi sig í loft upp við dómshús Nýtt spillingarmál skekur Úkraínu Kínverjar menga mest en standa sig samt best Ákváðu að vera opin gagnvart börnunum varðandi veikindin „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Hótar að kæra BBC fyrir einn milljarð dala „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Sjá meira