Önnur alvarleg líkamsárás 28. apríl 2005 00:01
Lögreglan á Akureyri hefur lokið rannsókn á líkamsárás þar sem sautján ára piltur var lokkaður upp í bíl og lokaður í farangursgeymslu þar sem ráðist var á hann með ofbeldi. Árásarmennirnir óku með piltinn út út Akureyrarbæ og hann sleginn þar sem hann lá í myrkri farangursgeymslunni, auk þess sem honum var ógnað með kúbeini. Að því loknu var aftur ekið með piltinn til Akureyrar þar sem honum var kippt úr farangursgeymslunni. Hann var sleginn, sparkað í andlit hans og trampað á höfði hans eftir að hann féll í götuna. Því næst var hann rifinn úr fötunum og dreginn nakinn eftir malarlögðu bílaplani. Eftir þetta allt saman tóku árásarmennirnir föt, síma og peninga af piltinum og óku á brott. Pilturinn stóð eftir hálfnakinn og berfættur með svöðusár á baki og komst við illan leik í miðbæinn. Þegar hann reyndi að sæta færis til að komast inn á leigubifreiðastöðina BSO kom skólafélagi hans að honum fyrir tilviljun og veitti honum aðstoð. Pilturinn segist aðeins hafa unnið sér til saka að hafa boðið systur eins árásarmannanna upp í bíl og hefur það verið staðfest af þeim sem grunaðir eru. Árásarmennirnir hafa allir komið við sögu fíkniefnamála hjá lögreglunni á Akureyri. Þeir hafa viðurkennt að hafa sammælst um að gefa rangan framburð af málsatvikum þegar þeir voru fyrst yfirheyrðir hjá lögreglu, en skriður komst á málið í tengslum við rannsókn fíkniefnamála sem lögreglan á Akureyri hefur unnið að að undanförnu.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira