Allir vilja Óskar Þórarinn Þórarinsson skrifar 25. febrúar 2005 00:01 Óskarsverðlaunin eru sjálfsagt umdeildustu bransaverðlaun sem sögur fara af en þau eru veitt árlega þegar Hollywoodliðið kemur saman og afhenda þeim gullstyttu sem meirihluti atkvæðisbærra í kvikmyndabransanum í Bandaríkjunum telur hafa skarað fram úr á liðnu ári. Verðlaunaathöfnin sjálf er skemmtiefni sem er sjónvarpað um allan heim en það merkilegasta við hana er þó að hún er sjaldnast mjög skemmtileg en samt geta margir ekki hugsað sér að missa af ósköpunum. Það er líka vissulega gaman að sjá stjörnurnar stíga til jarðar á rauða dregilinn og það er hægur vandi að byggja upp spennu í kringum úrslitin enda eru bíómyndir eitthvað sem allir nenna að hafa skoðanir á. Finnist einhverjum Eddan, ÍMARK verðlaunin eða jafnvel íslensku bókmenntaverðlaunin hallærisleg og innihaldsrýr þá eru þau yfirleitt borin saman við Óskarinn þegar gera á lítið úr þeim. Óskarsskrumið er vitaskuld yfirgengilegt að hætti Bandaríkjamanna og það er því auðvelt að láta þau fara í taugarnar á sér og stilla þeim upp sem víti sem ber að varast. Verðlaunin eru að mörgu leyti góð fyrir sinn hatt en eru, eins og flest önnur bransaverðlaun, hættuleg þegar þau eru gerð að mælikvarða á gæði. Markaðsgildi allra þessara uppákoma er ótvírætt og á bak við valið á hverjum sigurvegara er alls konar pólitík, kynningarherferðir og þrýstingur úr öllum áttum. Þannig vissu allir að Friðrik Þór Friðriksson myndi ekki hreppa hnossið fyrir Börn náttúrunnar sem bestu erlendu myndina. Myndin var fullsamkeppnisfær en Íslendingurinn hafði ekki fjárhagslega burði til að keppa við andstæðingana í markaðssetningu sem felst aðallega í því að troða myndunum ofan í kokið á þeim sem hafa atkvæðisrétt. Það má endalaust hártoga og deila um réttmæti hverrar niðurstöðu en þegar myndir á borð við Titanic og Gladiator, fá verðlaun fyrir bestu myndina hlýtur eitthvað að vera að. Þetta eru risastórar og flottar myndir en illa skrifaðar og ekkert sérstaklega vel leiknar. Íburðurinn slær blindu á mannskapinn sem ákveður að verðlauna þessi óskóp. Stundum reynir Akademían svo að sýna fram á að hún er ekki með mikilmennskubrjálæði og verðlaunar "litlar" myndir eins og Shakespeare in Love. Ágætis mynd sem er þó engan veginn nógu merkileg til að verðskulda Óskar, það er að segja ef Óskarinn hefði einhverja merkingu. Óskarsþrautaganga Stevens Spielberg er alltaf gott dæmi en þessum leikstjóra, sem hefur gert margar af vinsælustu myndum allra tíma, reyndist ómögulegt að hreppa verðlaunin fyrir ævintýramyndir sínar. Þá tekur hann sig til og gerir The Color Purple. Hörkufína og tilfinningaríka mynd en allt kemur fyrir ekki. Það er ekki fyrr en hann gerir mynd sem er þóknanleg gyðingunum sem öllu ráða í Hollywood, Schindler´s List, að hann sópar til sín styttunum. Martin Scorsese hefur átt við svipað vandamál að stríða og margir vilja meina að hann muni vinna með The Aviator í ár vegna þess að það sé "kominn tími á hann". Er The Aviator þá verri en Gangs of New York, The Age of Innocence, Goodfellas, The Last Temptation of Christ og Raging Bull en á bara að vinna af því leikstjórinn hefur beðið svo lengi? Eða eru kannski fyrrnefndar myndir miklu verri en The Aviator og áttu ekki inni fyrir verðlaununum? Fari svo að til dæmis Clint Eastwood nappi verðlaunum af Scorsese að þessu sinni endar Scorsese sennilega með því að fá heiðursóskar eftir nokkur ár og fer í gröfina án þess að vinna alvöru Óskar. Hann er þá í sömu sporum og Alfred Hithcock sem fékk aldrei leikstjóraverðlaunin þrátt fyrir hvert snilldarverkið á fætur öðru. Eina vitið fyrir alvöru hæfileikafólk er að gera eins og Woody Allen og sitja heima á Óskarskvöldum enda eru þessi glassúrbornu ósköp þolanlegri í sjónvarpinu með auglýsingahléum auk þess sem maður getur þá tryllst þegar maður tapar án þess að allur heimurinn verði vitni að því. thorarinn@frettabladid.is Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Í brennidepli Þórarinn Þórarinsson Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson Skoðun Skoðun Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar