Lögreglubílar skemmdust í eftirför 5. nóvember 2004 00:01
Kvikmyndatökumenn sem voru að störfum á Klapparstíg klukkan hálfsjö í morgun áttu fótum fjör að launa þegar ölvaður bílþjófur gerði sig líklegan til að aka á þá, á þeirra eigin bíl, þegar þeir ætluðu að stöðva hann. Tveir lögreglubílar skemmdust í eftirför sem hófst í kjölfarið. Bíll kvikmyndatökumannanna stóð opinn og með lyklunum í, enda voru þeir nánast að vinna við hliðina á honum, þegar þjófurinn læddist upp í hann, setti í gang og ók af stað. Þeir hringdu þegar í lögregluna og sáu lögreglumenn til bílsins skömmu síðar og ætluð að stöðva hann. Ökumaðurinn ók þá á lögreglubílinn og hélt áfram eftir einstefnugötum, á móti rauðum ljósum og nokkrum sinnum utan í tvö lögreglubíla sem þátt tóku í eftirförinni. Lögreglunni tókst loks að króa hann af á Miklubraut. Að sögn lögreglu vildi svo vel til að morgunumferðin var ekki byrjuð því stórhætta stafaði af akstri mannsins. Ökumaðurinn, sem er tvítugur, var þegar handtekinn og gistir nú fangageymslur. Lögreglubílarnir skemmdust báðir talsvert líkt og bíll kvikmyndatökumannanna.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Aðdragandinn að endinum hjá ríkislögreglustjóra Innlent Hótar að kæra BBC fyrir einn milljarð dala Erlent Héldu samverustund þar sem að tvö ár eru liðin Innlent Fellaskóli vann Skrekk Innlent Bjarga Gunnfaxa með því að flytja inn samskonar flugvél Innlent Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Erlent Breytingar á húsaleigulögum samþykktar sem lög Innlent Dómsmálaráðherra verði að segja satt og rétt frá Innlent Farsæll ferill eða í meira lagi umdeildur? Innlent Arndís Soffía tekur við af Grími Innlent Fleiri fréttir Héldu samverustund þar sem að tvö ár eru liðin Fellaskóli vann Skrekk Aðdragandinn að endinum hjá ríkislögreglustjóra Bjarga Gunnfaxa með því að flytja inn samskonar flugvél Hvatningarverðlaun gegn einelti afhent á Laugarvatni Tekist á um afgreiðslu velferðarnefndar Dómsmálaráðherra verði að segja satt og rétt frá Leiðtogaprófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík Mælist nú ekki með eins jákvætt viðhorf til kvenleiðtoga Nýr lögreglustjóri fljótur að ákveða sig og nýir vextir hjá Arion Breytingar á húsaleigulögum samþykktar sem lög Arndís Soffía tekur við af Grími Strætisvagni ekið á leikskólastarfsmann og barn Farsæll ferill eða í meira lagi umdeildur? Skyggnst inn í Hegningarhúsið Enginn gleymir þessum degi fyrir tveimur árum Heldur fullum launum Sigríður Björk hverfur á braut og umboðsmaður vill endurskoða meðferðarheimilin Flestum þykir Guðrún og Sigmundur hafa staðið sig illa Sigríður Björk segir af sér Ósammála lækni og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga – fyrri dagur Rússar nýta samsæriskenningar til að réttlæta innrásina í Úkraínu Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Hálfur annar tími og þrjú ólík farartæki til að sækja slasaðan göngumann Öll gögn á ensku annars ógildist krafan Lestir 205 steypubíla fóru í nýja brú yfir Breiðholtsbraut Íslandsbanki ríður á vaðið og svipast um í Hegningarhúsinu „Gramsaði í munum“ og ók síðan brott á stolnum bíl undir áhrifum Vill leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjanesbæ Sjá meira