Innlent
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 334 ›
Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Hótun barst skrifstofu Hagkaupa í Skútuvogi í Reykjavík í dag. Lögreglu var gert viðvart og skipaði í kjölfarið að starfsmenn rýmdu skrifstofuna. Sérsveit Ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu vegna málsins. Innlent 11.6.2026 12:01
Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Sveitarstjóri Vesturbyggðar telur að vafi leiki á hvort samningur Vegagerðarinnar heimili það að Baldur sé nýttur til siglinga milli lands og Eyja samhliða Herjólfi. Innlent 11.6.2026 11:44
Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Í hádegisfréttum verður rætt við fulltrúa Samtaka iðnaðarins um matvælaverð hér á landi en Samkeppniseftirlitið segir Íslendinga greiða 55 prósent meira fyrir matarkörfuna en íbúar ESB. Innlent 11.6.2026 11:39
Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028. Innlent 11.6.2026 11:36
Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Hermann Nökkvi Gunnarsson blaðamaður á Morgunblaðinu verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar nýs bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Hann tók einnig þátt í kosningabaráttu Vilhjálms. Innlent 11.6.2026 11:26
Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Vinir Hamraborgar segja það sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað nafn sitt undir undirskriftarlista þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að endurskoða áform um þéttingu og uppbyggingu í miðbæ Kópavogs. Einn þeirra segir draumatölu undirskrifta vera 2500 en þegar þetta er skrifað hafa 187 skrifað undir. Innlent 11.6.2026 10:47
Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð Mestu gljúfurkerfi íslenska landgrunnsins og kóralrif eru innan tæplega 33 þúsund ferkílómetra hafsvæðis sem Hafrannsóknastofnun leggur til að verði verndað. Verndunin er sögð geta haft einhver áhrif á botnvörpuveiðar. Innlent 11.6.2026 10:09
„Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað. Innlent 11.6.2026 10:00
Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun VR, LÍV og Fagfélögin efna til opins fundar fimmtudaginn 11. júní um verðbólguna, verðlag og laun. Fundurinn, sem ber yfirskriftina Eggið eða hænan, hefst klukkan 08:30 og verður í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 11.6.2026 08:02
Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar í aðsendri grein á vef Vísis í dag. 55 skrifa undir greinina og mótmæla lagasetningunni og krefjast þess að framkvæmdin verði stöðvuð. Þau segja „krappa hægri beygju“ í stefnu flokksins ekki hafa verið rædda á vettvangi hans og hún sé, að þeirra mati, í andstöðu við meginstefnu hans og grundvallarsjónarmið. Innlent 11.6.2026 07:55
Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Í dag, fimmtudaginn 11. júní, á milli klukkan 06:00 og 09:00 er stefnt á að færa umferð um Breiðholtsbraut af norðurakbraut yfir á suðurakbraut milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið. Innlent 11.6.2026 07:26
Mættu með stungusár á lögreglustöðina Tveir menn komu inn á lögreglustöðina við Hverfisgötu í gærkvöldi eða nótt, annar með blæðandi áverka í andliti. Sögðust mennirnir hafa verið stungnir skammt frá, af aðila sem þeir gátu nafngreint. Innlent 11.6.2026 06:35
Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Laxveiðitímabilið er að hefjast þessa dagana í ám landsins, þar á meðal í Vatnsdalsá í Húnaþingi. Hinn heimsfrægi tónlistarmaður Eric Clapton er einn þriggja leigutaka Vatnsdalsár. Innlent 11.6.2026 06:06
Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Þjónusta þjarka og falskra aðganga til að afvegaleiða umræðuna og auka upplýsingaóreiðu gengur kaupum og sölu á netinu. Greiningardeild ríkislögreglustjóra telur líklegt að erlendir aðilar muni reyna að hafa áhrif fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi ESB. Innlent 10.6.2026 23:13
Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, opnaði sig um hatursorðræðu og áhyggjur sínar af lýðræðislegri umræðu. Svæsin ummæli um hana og aðra þingmenn vekja upp spurningar. Innlent 10.6.2026 22:55
Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, hefur þegið boð Hildar Björnsdóttur um að taka við sem stjórnarformaður Orkuveitunnar. Innlent 10.6.2026 21:36
„Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir að aðild að Evrópusambandinu myndi bæta kjör almennings verulega með lægra matvælaverði og lægri vöxtum. Atkvæðagreiðslan í ágúst snúist ekki um aðild heldur hvort hefja eigi aðildarviðræður. Innlent 10.6.2026 21:22
NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun standa í stórræðum hér á landi í ágúst þegar sólmyrkvinn stendur sem hæst. Flugvélar og loftbelgir koma við sögu. Innlent 10.6.2026 21:20
Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, fór hörðum orðum um ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem hafi skilað brostnum væntingum, stórvesnandi efnahagsástandi og snúið sér að Evrópusambandinu þrátt fyrir vaxandi atvinnuleysi. Íslendingar séu ekki útskiptanlegar einingar. Hann sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda. Innlent 10.6.2026 20:43
„Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina afvegaleiða með áherslu sinni á Evrópusambandsaðild. Evran sé engin töfralausn og ríkisstjórninni færi betur að horfa sér nær og taka til í ríkisfjármálunum. Innlent 10.6.2026 20:28
Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) fara fram á Alþingi í kvöld og verða sendar út í beinu streymi á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 19:40. Innlent 10.6.2026 19:00
Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Sturlaugur Haraldsson hefur verið ráðinn sem bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Tillaga þess efnis var samþykkt á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar. Innlent 10.6.2026 18:25
Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Matvara hefur hækkað meira á Íslandi en annars staðar í Evrópu undanfarin fimm ár, samkvæmt greiningu Samkeppniseftirlitsins. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir stjórnvöld geta gert mun meira til að bregðast við þróuninni. Innlent 10.6.2026 18:02
Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings, málið hafi verulega almenna þýðingu. Steina var í lok febrúar sakfelld í Landsrétti fyrir manndráp af gáleysi. Innlent 10.6.2026 17:44
Sofandi á akbraut Lögreglunni barst tilkynning um konu í annarlega ástandi sem hafði sofnað á akbraut. Hún var flutt á sjúkrahús. Innlent 10.6.2026 17:33
Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Heitavatnslaust verður í Vesturbæ, Miðborg og hluta af Hlíðum í kvöld, 10. júní, klukkan 22:00 og fram undir morgun fimmtudags, 11. júní. Innlent 10.6.2026 17:08
Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Nokkur mál varðandi brot á áfengislögum eru til afgreiðslu á ákærusviði lögreglunnar. Engin ákæra hefur verið gefin út í slíkum málum frá því í apríl. Innlent 10.6.2026 16:43
Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Lögmaður Landsvirkjunar í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu til að stöðva framkvæmdir við Hvammsvirkjun segir framkvæmdirnar í vari út árið, hvað sem líður mögulegri áfrýjun landeigendanna. Innlent 10.6.2026 16:24
Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu var heimilt að neita Vísi um aðgang að umsögn um reynslu af sérlausn sem Ísland fékk fyrir flug í ETS-losunarkerfinu. Úrskurðarnefnd taldi að greininingin gæti veitt Evrópusambandinu innsýn í samningsmarkmið Íslands. Innlent 10.6.2026 15:30
Barn réðst með belti á önnur börn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar líkamsárás barns á tvö önnur börn í strætóskýli í Hlíðunum í gær. Barnið er talið hafa beitt belti við árásina. Innlent 10.6.2026 15:16