Innlent

Fréttamynd

At­vinnu­leysi dróst saman

Atvinnuleysi mældist 5,7 prósent í september en alls voru rúmlega fimmtán þúsund án atvinnu samkvæmt árstíðarleiðréttum niðurstöðum rannsóknar Hagstofunnar. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum

Forysta Viðreisnar fær kaldar kveðjur í nýjum pistli Jóns Gnarr, sem lýsir sér sem hermanni sem hafi verið sendur óstuddur í tapaðan bardaga. Ábendingum hans um bágborið ástand herdeildarinnar hafi lítt verið sinnt og nú telji hann sér betur borgið utan hennar.

Innlent
Fréttamynd

Segir lög­reglu­menn á Vest­fjörðum á­hyggju­fulla

Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar segist hafa verulegar áhyggjur af áformum dómsmálaráðherra um fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú. Hann segir farið gegn vilja landsbyggðarinnar í málinu og er hann efins um að staðið verði við loforð um að lögreglustöðinni á Ísafirði verði ekki lokað. Lögreglumenn á Vestfjörðum hafi lýst yfir áhyggjum af málinu

Innlent
Fréttamynd

Óhugnan­lega margir að leysa vanda­málin með töflum

Yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala kallar eftir frekari rannsóknum á notkun geðrofslyfsins quetiapíns við svefnleysi. Notendum lyfsins hefur fjölgað verulega á síðustu tíu árum, einkum meðal eldra fólks. Hún segir þær fáu rannsóknir sem liggja fyrir benda til þess að lyfið geti haft jafnmiklar aukaverkanir og hefðbundin svefnlyf.

Innlent
Fréttamynd

„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“

Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss segir það fjarri sinni skoðun að dæma eigi fólk út frá kynferði, lit eða trú. Hann segir að á sama tíma séu miklar samfélagslegar breytingar að verða á Íslandi og að hann hafi áhyggjur af hraðri fjölgun innflytjenda frá Norður-Afríku og Miðausturlöndum. Tími sé kominn á að halda skrá utan um þjóðerni þeirra sem fremji ofbeldisbrot líkt og gert sé í Danmörku.

Innlent
Fréttamynd

Sigur­vin kallaður út vegna Hildar

Björgunarskipið Sigurvin var kallað út í morgun vegna 475 tonna fiskiskips að nafni Hildur sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og varð í kjölfarið aflvana. Skipið var statt um miðja vegu milli Siglufjarðar og Grímseyjar.

Innlent
Fréttamynd

Ekki til­raun til mann­dráps að taka sam­býlis­konuna kverka­taki

Karlmaður hefur verið dæmdur til 3,5 ára fangelsisvistar fyrir gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann var ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa tekið konuna kyrkingartaki en dómurinn taldi ekki sannað að hann hefði haft ásetning til þess að myrða konuna. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldi í garð konunnar og einnig fyrir að nauðga barni.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk

Fólk sem hefur verið dæmt fyrir manndráp eða alvarlegar líkamsárásir gæti fengið að annast fatlað fólk samkvæmt frumvarpsdrögum Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Einhverfusamtökin gagnrýna áformin og telja nauðsynlegt að meta áhrif þeirra á öryggi þjónustunotenda.

Innlent
Fréttamynd

Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram

Það skýtur skökku við að heilbrigðisráðherra afskrifi Litla spítalann í fjölmiðlum á meðan erindi aðstandenda hans er enn til skoðunar hjá Sjúkratryggingum Íslands, að mati Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún vonast til að einkarekstur þjónustunnar hafi ekki blindað sýn ráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Stefna á að hefja leit í nóvember

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að í næsta mánuði verði mögulega hægt að hefja leit að jarðneskum leifum manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík árið 2024. Nú sé unnið að mótvægisaðgerðum.

Innlent
Fréttamynd

Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi

Fyrirhuguð íbúðablokk við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði kemur í veg fyrir áframhaldandi flugeldasölu í húsnæði Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, að sögn sveitarinnar. Hún óskar eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu svo halda megi sölunni áfram.

Innlent
Fréttamynd

Dómurinn feli í sér til­mæli til þingsins

Nítján lögmenn sem starfa á sviði skaðabótaréttar segja að nýlegur dómur Hæstaréttar feli í sér tilmæli til Alþingis um að uppfæra þurfi skaðabótalög og færa þau til nútímans. Boltinn sé hjá dómsmálaráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Komi ekki til greina að hætta við talna­kvarðann

Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki komi til greina að endurskoða áform um breyttan einkunnakvarða.Áform hennar um nýtt einkunnakerfi í grunnskólum þar sem tölustafir verða teknir upp að nýju hafa hlotið töluverða gagnrýni. Málið var rætt á þingi í gær og var Inga Sæland menntamálaráðherra þar gagnrýnd fyrir sín svör.

Innlent
Fréttamynd

Endur­meta fyrir­komu­lag RS-bólu­setninga næstu árin

Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir embætti landlæknis nú vinna að því að endurmeta fyrirkomulag bólusetninga vegna RS-veiru næstu árin. Virkni bóluefnisins dvíni eftir um fimm til sex mánuði og því sé best að gefa það meðan á faraldri stendur eða í aðdraganda hans. Markhópurinn hafi verið skilgreindur með tilliti til þess og það sé ástæðan fyrir því að aprílbörn hafi ekki fengið bóluefnið. Foreldrar þeirra hafa gagnrýnt fyrirkomulagið.

Innlent