Fréttir

Rann­sökuðu eigin sam­særis­kenningar um fljúgandi furðu­hluti

Fámenn sérstök skrifstofa í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafði varið mögum mánuðum í að rannsaka samsæriskenningar um leynilegar tilraunir yfirvalda í Bandaríkjunum með furðulega furðuhluti, þegar þeir uppgötvuðu að einn þeirra, að minnsta kosti, átti uppruna í ráðuneytinu sjálfu.

Erlent

Her­menn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar

Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að senda tvö þúsund þjóðvarðliða til Los Angeles í Kaliforníu til að kveða niður mótmæli í borginni. Trump-stjórnin hefur jafnframt hótað því að landgönguliðar verði sendir á svæðið, en mótmælt hefur verið í borginni gegn áhlaupum og handtökum útsendara Innflytjendastofnunar Bandaríkjanna, ICE. 

Innlent

Hætta með öku­skír­teini í símaveski vegna Evrópureglna

Undir lok sumars verður ekki hægt að vera með stafræn skírteini frá hinu opinbera í símaveskjum heldur þarf að ná í sérstakt forrit. Framkvæmdastjóri Stafræns Íslands segir að um sé að ræða samræmingu við stefnu Evrópulanda sem séu að taka þessa stefnu í öryggismálum. Ný reglugerð frá Evrópusambandinu um stafræna auðkenningu taki bráðum gildi.

Innlent

Hótar Musk al­var­legum af­leiðingum styðji hann Demó­krata

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sendi Elon Musk, auðugasta manni heims og fyrrverandi bandamanni sínum, viðvörun í gær. Trump sagðist ekki hafa nokkra ástæðu til að lappa upp á samband þeirra að svo stöddu, eftir opinberar deilur þeirra síðustu daga. Þá hét Trump „alvarlegum afleiðingum“ ef auðjöfurinn notaði peninga sína til að styðja Demókrata í framtíðinni.

Erlent

Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlar að senda tvö þúsund menn úr þjóðvarliði Kaliforníu til Los Angeles og úthverfa, þrátt fyrir að Gavin Newsom, ríkisstjóri, hafi mótmælt því. Forsetinn vill nota hermennina til að kveða niður mótmæli sem haldin hafa verið gegn áhlaupum og handtökum útsendara Innflytjendastofnunar Bandaríkjanna (ICE) í borginni.

Erlent

Þrír reyndu að komast undan lög­reglu

Lögregluþjónar á höfuðborgarsvæðinu höfðu í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Meðal annars reyndu þrír ökumenn í mismunandi ásigkomulagi að reyna að komast undan lögregluþjónum. Þá var einn vopnaður maður sem reyndi að komast undan á hlaupum, svo eitthvað sé nefnt.

Innlent

Danskar her­þotur verða stað­settar á Græn­landi

Grænlenska landsstjórnin og danska ríkisstjórnin hafa kynnt ákvörðun um að viðvera danska hersins á Grænlandi verði efld á næstu mánuðum. Tilgangurinn er bæði að styrkja varnarmátt danska hersins á norðurslóðum og að treysta öryggis- og björgunarviðbúnað gagnvart íbúum Grænlands.

Erlent

Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxem­borg

Um 50 jöklar hafa nú þegar horfið hér á landi og heldur hopun þeirra áfram að hraðast sökum loftslagsbreytinga. Fagstjóri hjá Veðurstofunni segir einn fallegasta jökul Austurlands vera meðal þeirra næstu í röðinni til að hverfa.

Innlent

70 milljóna króna halli vegna upp­sagnar samningsins

Vinnumálastofnun sagði upp samningum við þrjú sveitarfélög um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Áhrif uppsagnarinnar geta leitt til allt að sjötíu milljóna króna halla hjá Reykjanesbæ. Sveitarfélagið hefur þjónustað umsækjendurna frá árinu 2004.

Innlent

Grófu látin og særð börn upp úr rústum

Minnst 95 eru sagðir látnir í árásum Ísraelshers á Gasa síðasta sólarhringinn. Aðstandendur ísraelskra gísla í haldi Hamas kalla eftir að ísraelsk stjórnvöld hætti hernaðaraðgerðum.

Erlent

Wagner yfir­gefur Malí í skugga mikilla á­rása

Leiðtogar rússneska málaliðahópsins Wagner group lýstu því yfir í gær að þeir ætluðu að yfirgefa Malí, eftir að hafa verið þar í vel á fjórða ár. Þar hafa málaliðarnir aðstoðað her Malí, sem hefur beðið hnekki gegn uppreisnar- og vígamönnu. Rússar munu áfram vera með viðveru í landinu í gegnum málaliðahópinn Africa Corps, sem stýrt er af leyniþjónustu Rússneska hersins (GRU).

Erlent

Um­ræðu um bókun 35 aftur frestað

Þingfundi á Alþingi lauk um tuttugu mínútur yfir fjögur en þá hafði hann staðið í um sex klukkustundir. Umræður um frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35 á Alþingi höfðu þegar staðið í sex klukkustundir á föstudagskvöld þegar henni var frestað fram á laugardagsmorgun. Umræðunni hefur aftur verið frestað fram á þriðjudag.

Innlent

Um­mæli Kol­brúnar blaut tuska í and­lit ung­menna

Annar framhaldsskólanemi sem veitti umsögn fyrir menntamálanefnd á frumvarpi um grunnskólamat sem samþykkt var í gær segir ummæli Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur blauta tusku í andlit ungs fólks sem vilji taka þátt í lýðræðislegri umræðu.

Innlent

Yfir­fara þurfi öryggis­mál við Brúar­á

Erlendur ferðamaður, kona á fertugsaldri, sem féll í Brúará í gær var úrskurðuð látin á vettvangi. Um er að ræða þriðja banaslysið í Brúará á aðeins nokkrum árum. Sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir þetta mikið áhyggjuefni, mikilvægt sé að yfirfara öryggismál við ána sem sé á landi í einkaeigu.

Innlent

Enn eitt bana­slysið í Brúar­á, land­vinningar lúsmýs og þungarokkshátíð

Erlendur ferðamaður, kona á fertugsaldri, sem féll í Brúará í gær var úrskurðuð látin á vettvangi. Um er að ræða þriðja banaslysið í Brúará á aðeins nokkrum árum. Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við sveitarstjóra Bláskógabyggðar sem segir þetta mikið áhyggjuefni, mikilvægt sé að yfirfara öryggismál við ána sem sé á landi í einkaeigu.

Innlent

Vís­bendingar um að síðasta vígið sé fallið

Lúsmý fer nú að klekjast út en vatnalíffræðingur segir að í ár, tíu árum eftir að flugan gerði fyrst vart við sig á Íslandi, séu vísbendingar um að hún hafi komið sér fyrir um allt land, meðal annars á Vestfjörðum þar sem hennar hefur ekki orðið vart áður. Þá fór lúsmýið fyrr af stað á minnst einum stað í hitabylgjunni í maí.

Innlent

Glittir í endur­komu sumarsins

Það glittir í endann á því hreti sem hrellt hefur landann undanfarna daga. Eftir hlýjasta maí í manna minnum kyngdi niður snjó og trampólín tókust á loft um leið og júní bar að garði. Nú sér loks í ljósið að sögn veðurfræðings.

Veður

Mót­mæli og á­tök eftir á­hlaup ICE í Los Angeles

Til átaka kom milli mótmælenda og starfsmanna Innflytjendastofnunnar Bandaríkjanna (ICE) eftir að tugir voru handsamaðir í áhlaupum ICE víðsvegar um Los Angeles í gær. Karen Bass, borgarstjóri, segir aðgerðum ICE í borginni ætlað að skapa ótta meðal íbúa.

Erlent

Aftur logar eldur í Læradal

Eldar loga í miðbæ Læradals í Sogn- og Firðafylki í Noregi. Minnst fjögur hús hafa orðið eldinum að bráð og slökkviliðið hefur ekki stjórn á honum. Tíu ár eru liðin síðan allt að 30 hús í bænum brunnu til kaldra kola og 52 voru lagðir inn á sjúkrahús.

Erlent