Þrír létust í banaslysi á Krýsuvíkurvegi

Fréttamynd

Stúlkan frá Ír­landi en bú­sett hér á landi

Tæplega nítján ára stúlka sem lést í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags var frá Írlandi en búsett hér á landi þar sem hún undi hag sínum vel. Talið er að bíllinn hafi verið á yfir tvö hundruð kílómetra hraða áður en slysið varð.

Innlent
Fréttamynd

Lík­lega á yfir tvö hundruð kíló­metra hraða

Bíllinn sem þrjú ungmenni voru í þegar hann hafnaði utan vegar á Krýsuvíkurvegi með þeim afleiðingum að öll þrjú létust var á yfir tvö hundruð kílómetra hraða þegar slysið varð. Eldur kviknaði í bílnum þar sem hann lenti í hrauninu. Þrír bílar til viðbótar voru á vettvangi þegar slysið varð, en eitt ungmennanna var erlendur ríkisborgari.

Innlent
Fréttamynd

Minningarstundir vegna andlátanna

Minningarstund verður haldin í Lágafellskirkju vegna andláts Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur. Einnig verður minningarstund um Benjamín Guðmundsson í Háteigskirkju. Þau létust bæði í umferðarslysi á Krísuvíkurvegi aðfaranótt mánudags.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri bílar á vett­vangi og hrað­akstur til skoðunar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ræðir nú við vitni vegna banaslyssins á Krýsuvíkurvegi þar sem þrjú ungmenni létust. Önnur stúlkan var nemandi í Menntaskólanum við Sund og í gærkvöldi fór fram kyrrðarstund í Langholtskirkju fyrir nemendur.

Innlent
Fréttamynd

„Engin orð ná utan um slíkan missi“

Halla Tómasdóttir forseti vottar aðstandendum ungmennanna sem létust í umferðarslysi við Krýsuvíkurveg í nótt samúð sína. Guðrún Karls Helgudóttir biskup biður fyrir þeim sem eiga um sárt að binda.

Innlent