Sveitarstjórnarkosningar 2026 „
1 2 3 4 5 6 … 9 ›
„Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, segist vilja endurskoða Borgarlínuna frá grunni. Eins konar tálsýn hafi verið búin til um verkefnið sem hann líkir við járnbrautarslys. Innlent 9.2.2026 22:20
Drífa Snædal snýr aftur Drífa Snædal, talskona Stígamóta, ætlar að ganga aftur til liðs við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð (VG). Hún yfirgaf flokkinn með áberandi hætti árið 2017 vegna óánægju með þá fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins. Innlent 9.2.2026 18:14
Flutti til Reykjavíkur í dag Ari Edwald segir það spennandi tækifæri að fá að leiða Miðflokkinn í borgarstjórnarkosningum í vor. Borgarbúar þrái breytingar, sem hann vilji leiða. Hann flutti til Reykjavíkur í dag eftir að hafa búið í Portúgal og Garðabæ síðustu mánuði. Innlent 9.2.2026 12:25
Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Ari Edwald verður oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík í vor. Hann staðfestir þetta í færslu á samfélagsmiðli. Innlent 9.2.2026 09:18
Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Borgarfulltrúar í Reykjavík eru með langhæstu grunnlaunin meðal kjörinna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu en bæjarstjórar sveitarfélaganna sex eru með á bilinu tvær til þrjár milljónir króna í laun og aðrar fastar greiðslur á mánuði. Almennir bæjarfulltrúar á höfuðborgarsvæðinu eru flestir með á bilinu 350 til 420 þúsund krónur í föst grunnlaun á mánuði, en ofan á það leggjast ýmsar greiðslur fyrir formennsku og setu í ráðum og nefndum, og jafnvel er greitt fyrir setu á einstaka fundum, sem geta togað launin upp um nokkra hundraðþúsundkalla til viðbótar á mánuði. Innlent 9.2.2026 06:47
Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Orri Björnsson, bæjarfulltrúi, mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnafirði í vor og tekur þannig við oddvitasætinu af Rósu Guðbjartsdóttur sem er farin á þing. Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi, er í öðru sæti listans og Viktor Pétur Finnsson í því þriðja. Innlent 7.2.2026 22:04
Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Birgir Örn Guðjónsson, frambjóðandi á lista Viðreisnar í Kópavogi, segist svekktur eftir að hafa ekki fengið kjör og íhugar hvort hann muni þiggja sæti á lista flokksins verði honum boðið sæti. Ísak Leon Júlíusson, annar frambjóðandi sem hlaut ekki kjör, er aftur á móti handviss um að hann muni þiggja sæti. Innlent 7.2.2026 21:27
Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi Þór Sigurgeirsson var í dag endurkjörinn oddviti D-lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi. Í tilkynningu kemur fram að Þór hlaut 566 atkvæði í 1. sæti eða 71,4 prósent atkvæða. Hann hefur verið oddviti D-listans síðan 2022. Innlent 7.2.2026 20:44
María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir verður oddviti Viðreisnar í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Varaþingmaður Viðreisnar vermir annað sæti listans og fótboltakappi það þriðja. Innlent 7.2.2026 20:09
Alma stolt af syninum Alma Möller heilbrigðisráðherra segist stolt af syni sínum sem var í kvöld kjörinn oddviti. Hún segist aðallega hafa lagt honum lið í kosningabaráttu með því að passa dætur hans. Lífið 7.2.2026 18:41
Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Á fundi fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Kópavogi í dag var Orri Vignir Hlöðversson kjörinn oddviti Framsóknar í Kópavogi og mun leiða flokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum. Orri er bæjarfulltrúi Framsóknar og formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar. Hann leiddi lista Framsóknar í sveitarstjórnarkosningunum 2022. Innlent 7.2.2026 18:25
Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Jónas Már Torfason hefur verið kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. Þetta var tilkynnt á Krónikunni í Gerðasafni. Innlent 7.2.2026 18:04
Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Búið er að velja þau fjögur sem skipa fjögur efstu sætin á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningum í vor. Þorvaldur Daníelsson framkvæmdastjóri Hjólakrafts skipar þriðja sætið og Halldór Bachmann kynningarstjóri Almenna lífeyrissjóðsins það fjórða. Innlent 7.2.2026 17:57
„Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, telur flokksstarfi sínu fyrir Sjálfstæðisflokkinn lokið eftir að hann laut í lægra haldi gegn Berglindi Ósk Guðmundsdóttur í oddvitaslag. Hann segir margt rotið innan flokksins á Akureyri. Innlent 7.2.2026 16:53
Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Stofnleið hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu í vesturbæ Reykjavíkur sem lokað var fyrir þremur árum síðan vegna framkvæmda er enn lokað. Formaður Landssamtaka hjólreiðamanna segir augljóst að bílstjórar og verktakar séu í forgangi hjá borginni en ekki hjólreiðafólk. Þar séu atkvæði og peningar fyrir stjórnmálamenn í aðdraganda kosninga. Innlent 7.2.2026 16:26
Berglind rétt marði Þórhall Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður, er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Berglind hlaut 51 prósent atkvæða gegn 46 prósentum Þórhalls Jónssonar varabæjarfulltrúa sem sóttist einnig eftir oddvitasætinu. Þrír skiluðu auðu. Innlent 7.2.2026 14:41
Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur og fyrrverandi blaðamaður hyggst bjóða sig fram fyrir Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Hún segir Reykjavík frábæra borg en aðkallandi verkefni séu mörg, hugmyndafræðilegar kreddur hafi borið heilbrigða skynsemi ofurliði. Innlent 7.2.2026 11:00
Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði Viðreisn mun bjóða fram undir eigin merkjum í Ísafjarðarbæ í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi en ekki með Í-listanum líkt og undanfarin ár. Innlent 7.2.2026 10:14
„Það er ekkert hæft í þessu“ Frosti Logason verður ekki oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningum í vor. Flokkurinn mælist samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum með tvo borgarfulltrúa inni þrátt fyrir að hafa ekki kynnt hver mun leiða lista flokksins í borginni. Innlent 7.2.2026 09:52
Forvarnir eru ekki kostnaður – þær eru fjárfesting í framtíðinni Forvarnir meðal ungs fólks er eitt mikilvægasta verkefni sem samfélagið stendur frammi fyrir í dag. Þegar ungir einstaklingar leiðast út af brautinni er það sjaldnast vegna skorts á vilja eða hæfileikum, heldur vegna skorts á stuðningi, tilgangi og öruggu umhverfi. Skoðun 6.2.2026 13:00
Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Birgir Örn Guðjónsson, deildarstjóri hjá Barna- og fjölskyldustofu, sem betur er þekktur sem Biggi lögga þá er hann starfaði í lögreglunni hefur staðið í prófkjörsbaráttu en hann vill leiða Viðreisn í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Nú segir hann að reynt sé að bregða fyrir hann fæti með lygasögu um ofbeldi. Innlent 6.2.2026 11:31
„Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Enn er óvíst hvort einhverjir þeirra flokka sem áttu aðild að Í-listanum í Ísafjarðarbæ muni bjóða fram sameiginlegan lista í komandi sveitarstjórnarkosningum eða hvort þeir bjóði fram í eigin nafni. Viðræðum um áframhaldandi samstarf var slitið í vikunni eftir að ekki náðist samstaða um uppstillingu á lista undir formerkjum Í-listans. Sitjandi oddviti listans segir kjarnann úr hópnum hafa áhuga á að halda áfram og sjálfur hyggst hann gefa kost á sér. Það eigi eftir að koma í ljós hvort það verði í nafni Viðreisnar eða annars sameiginlegs framboðs. Innlent 6.2.2026 07:59
Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Samningaviðræðum um áframhaldandi samstarf aðildarflokka Í-listans í Ísafjarðarbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hefur verið slitið. Þannig ekki útlit fyrir að boðið verði fram undir merkjum Í-listans í sveitarfélaginu í komandi kosningum en ástæðan er sú að ekki náist samstaða milli aðildarflokkanna um uppstillingu framboðslista né heldur að samræma ólíkar áherslur. Innlent 5.2.2026 09:08
Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Helgi Áss Grétarsson fær áfram tæpa hálfa milljón króna í laun á mánuði sem fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins þrátt fyrir að hann hafi sagt sig úr flokknum og gegni engum trúnaðarstörfum lengur. Oddviti flokksins telur óeðlilegt að á meðan fái staðgengill Helga ekkert greitt. Innlent 5.2.2026 08:01
Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Páll Edwald hefur ákveðið að gefa kost á sér á lista Miðflokksins í Reykjavík í vor. Hann er lögfræðingur og athafnamaður og líkt og nafnið gefur til kynna sonur Ara Edwald fyrrverandi forstjóra Mjólkursamsölunnar. Innlent 4.2.2026 22:29
Tveggja turna tal í Reykjavík Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út. Innlent 3.2.2026 22:19
Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Miðflokkurinn ætlar að bjóða fram lista í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta verður í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu en flokkurinn lýsir nú eftir áhugasömum til að taka sæti á lista flokksins í Eyjum fyrir kosningarnar í vor. Innlent 3.2.2026 11:17
Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Alls bárust átta framboð í forvali Vinstri grænna í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. Frambjóðendurnir átta berjast um þrjú sæti á lista en framboðsfrestur rann út á miðnætti þann 1. febrúar. Innlent 3.2.2026 07:37
Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það létti að hafa unnið sannfærandi sigur í leiðtogaprófkjöri flokksins í Reykjanesbæ í gær. Hann kveðst afar þakklátur og ætlar að sinna þingstörfum og kosningabaráttu fram að sveitarstjórnarkosningum í maí. Innlent 1.2.2026 14:53
Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum „Það þarf að létta á kerfinu. Við þurfum að átta okkur á því fyrir hvern við erum að vinna, hvert er hlutverkið? Er þetta nauðsynlegt verkefni? Og svo framvegis. Það þarf klárlega að fara í einhverja endurskoðun á hvernig kerfið er. Þarna er ég ekki að tala um þjónustuna inni í skólunum og frístundarheimilunum. Ég er að tala um þessa miðlægu stjórnsýslu. Við verðum að skýra hana betur.“ Innlent 1.2.2026 13:07