Kvöldfréttir

Fréttamynd

Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyja­firði og fjölbragðaglíma

Stjórnvöld í Íran og Ísrael hafa sakað hvort annað um brot á vopnahléi í dag en mikil óvissa ríkir um hvort vopnahlé muni halda. Í kvöldfréttum Sýnar á eftir verður rætt við íslenskan prófessor í sagnfræði Miðausturlanda sem segir að öllum yfirlýsingum stjórnvalda í Íran, Ísrael og í Bandaríkjunum beri að taka með miklum fyrirvara.

Innlent
Fréttamynd

Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn

Skýrslur verða teknar af þrjátíu og fimm einstaklingum í næstu viku í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Jónssonar. Í kvöldfréttum Sýnar verður rætt við bróður Jóns Þrastar um nýjar kenningar og skýrslutökurnar sem hann segir marka tímamót í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Hátt spennustig, ruslið sem ekki er hægt að endur­vinna og kvennavaka

Þrettán Íslendingar eru staddir í Íran og Ísrael og eru í sambandi við utanríkisráðuneytið. Þar af eru níu í Íran þaðan sem ekki eru skipulagðir brottflutningar. Ekkert lát er á árásum á milli ríkjanna tveggja og hafa Ísraelar heitið frekari hefndum en enn er óvíst um þátttöku Bandaríkjanna í hernaðinum. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Sýnar.

Innlent
Fréttamynd

Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ó­lagi og hittaramessa

Frönsku ferðamennirnir sem fundust látnir á Edition hótelinu í Reykjavík voru búsettir á Írlandi. Lögregla segir skýrari mynd komna á atburðina aðfaranótt laugardags, rannsókn málsins sé hinsvegar á frumstigi og mikil vinna framundan. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Sýnar.

Innlent
Fréttamynd

Upp­nám á Al­þingi og í beinni frá Bíladögum

Alþingi kom saman í dag til að ræða frumvarp um bókun 35 sem hefur nú verið á dagskrá í um sextíu klukkustundir í annarri umræðu. Þingfundir fara afar sjaldan fram á sunnudegi og varð ákvörðun forseta Alþingis þar um þrætuepli meðal þingmanna í dag.

Innlent
Fréttamynd

Varg­öld í verk­taka­bransanum, mót­mæli og þris­tur fluttur

Stjórnendum verktakafyrirtækis og fjölskyldum þeirra hefur verið hótað lífláti og öxum, bensín- og reyksprengjum hefur verið beitt við heimili þeirra. Stjórnendurnir segja handrukkara á bak við árásirnar og að þær megi rekja til deilna um uppgjör við landeldisfyrirtækið First Water. Lögregla lítur málið alvarlegum augum.

Innlent
Fréttamynd

Fastir í flug­stöðinni í fjóra daga og Trump-Tesla í Kefla­vík

Fjórir verkamenn frá Belarús sátu fastir á Keflavíkurflugvelli í fjóra daga eftir að hafa fengið synjun um að koma til landsins. Þeir segjast aldrei hafa fengið að vita hvers vegna þeim var haldið þar. Sá sem réði mennina í vinnu segir þá ekki einu sinni hafa getað keypt sér að borða.

Innlent
Fréttamynd

Á­stand í Kali­forníu og breytt frum­varp um kílómetragjald

Ríkisstjóri Kaliforníu ætlar að höfða mál gegn ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta, fyrir að senda þjóðvarðliða til Los Angeles. Aðgerðum alríkisstjórnarinnar gegn innflytjendum var mótmælt alla helgina en sjálfur útilokar Trump ekki að senda landgönguliða til borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Lömb á kafi, útlendingaumræðan og Brynjar Karl í beinni

onskuveður var víðast hvar um land í dag og bitnaði einna helst á sauðfjárbændum og ferðamönnum á tjaldsvæðum sem ráku upp stór augu þegar að fannhvít jörð blasti við í morgun. Kindur aðstoðuðu sauðfjárbændur við að finna afkvæmi sín sem fennt hafði yfir. Við sjáum myndir af sumarsnjókomu, ræðum við bændur og verðum í beinni með veðurfræðingi í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Innlent
Fréttamynd

Ó­veður, yfir­lið á tón­leikum og málahali

Óvissustigi Almannavarna hefur verið lýst yfir vegna norðanáhlaups sem spáð er næsta sólarhringinn. Búist er við samgöngutruflunum og fólk er hvatt til að fylgjast vel með veðurspám. Við ræðum við bónda sem er að búa sig undir veðrið og verðum í beinni frá Vegagerðinni í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Innlent
Fréttamynd

Hasar á tvö­földum mót­mælum, flugsýning og trylli­tæki í beinni

Stimpingar brutust út milli mótmælenda við Austurvöll í dag. Mótmælum þar sem krafist var endurskoðun á hælisleitendakerfinu var mótmælt af samtökum sem vilja opna landamærin. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sýnum við myndir frá mótmælunum og rætt verður við mótmælendur úr báðum fylkingum.

Innlent
Fréttamynd

Samrunatillögur bankanna og sjó­veikur sund­kappi

Stjórn Íslandsbanka hefur óskað eftir því við stjórn Kviku banka að hafnar verði samrunaviðræður milli félaganna tveggj.a Stjórn Arion banka óskaði eftir því í gær við stjórn Kviku að hafnar yrðu samrunaviðræður milli Arion og Kviku. Hörður Ægisson ritstjóri Innherja fer yfir málið í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2. 

Innlent