Eþíópía

Eþíópía

Höfuðborg: Addis Ababa. Mannfjöldi: 129,7 milljónir (2025). Flatarmál: 1.104.300 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Aftur stríð í Eþíópíu

Nýtt stríð virðist hafið í Eþíópíu þar sem leiðtogar Frelsisfylkingarinnar svokölluðu í Tigray-héraði og bandamenn þeirra ætla að velta ríkisstjórn landsins úr sessi. Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar segjast vera að heyja varnarstríð gegn ríkisstjórninni og eru þeir sagðir hafa gert umfangsmikla sókn víðs vegar um norðurhluta landsins.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Banda­ríkja­maður sagður smygla vopnum og mála­liðum til Súdan

Rannsakendur Sameinuðu þjóðanna komust að því að flugvélar í eigu bandarísks málaliðafyrirtækis hafa verið notaðar til að flytja málaliða frá Suður-Ameríku, vopn og dróna fyrir alræmda uppreisnar- og vígamenn í Súdan. Rapid support forces, eða RSF, hafa verið sakaðir um þjóðernishreinsanir í Darfur-héraði og bera ábyrgð á fjölmörgum ódæðum í Súdan á undanförnum árum.

Erlent
Fréttamynd

Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir

Ekki er vitað um ferðir um tuttugu eþíópískra drengja, sem saman mynduðu fótboltalið, á fótboltamótinu Gothia Cup sem fram fór í Gautaborg í Svíþjóð á dögunum.

Erlent
Fréttamynd

Flytja banda­ríska erind­reka frá Khartoum í skugga átaka

Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur skipað nokkrum tugum bandarískra erindreka og fjölskyldum þeirra að yfirgefa Khartoum, höfuðborg Súdan, þar sem blóðug átök geisa á milli stríðandi fylkinga. Bandarískir hermenn sóttu fólkið á þremur herþyrlum við sendiráðið snemma í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Ísland veitir 80 milljónum til Eþíópíu

Á framlagaráðstefnu sem fram fór í Genf í gær tilkynntu íslensk stjórnvöld að þau myndu veita 80 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í Eþíópíu á þessu ári. Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Evrópusambandið, Eþíópía, Kenía og Sómalía stóðu fyrir ráðstefnunni vegna yfirvofandi hungursneyðar af völdum þurrka á svæðinu sem kennt er við horn Afríku.

Heimsmarkmiðin
Fréttamynd

Um 25 milljónir manna í Austur-Afríku búa við sult vegna þurrka

Verstu þurrkar í fjörutíu ár hafa leitt til alvarlegs matarskorts í austurhluta Afríku, einkum í Eþíópíu, Kenía, Sómalíu og Sómalílandi. Að mati Alþjóðabjörgunarnefndarinnar, IRC, hafa nú þegar þrettán milljónir manna sáralítið að borða og búa aukin heldur við vatnsskort. Óttast er að ástandið versni á næstu mánuðum.

Heimsmarkmiðin
Fréttamynd

Sam­mælast um vopna­hlé í Tigray-héraði

Stjórnvöld í Eþíópíu lýstu í morgun yfir ótímabundið vopnahlé af mannúðarástæðum í Tigray-héraði í norðurhluta landsins þar sem stríð hefur geisað frá árinu 2020. Ástæðan er að gefa íbúum á stríðssvæðunum færi á að taka á móti hjálpargögnum.

Erlent
Fréttamynd

Horn Afríku: Horfellir og hungur af völdum langvinnra þurrka ​

Þurrkar valda miklum búsifjum og matarskorti í þremur löndum sem kennd eru við horn Afríku, Eþíópíu, Kenía og Sómalíu. Að mati Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, WFP, búa um þrettán milljónir íbúa þessara landa við sult og seyru. Jafn langvinnir þurrkar hafa ekki verið á þessum slóðum í rúmlega fjörutíu ár, eða frá árinu 1981.

Heimsmarkmiðin
Fréttamynd

Fjölskyldur á heljarþröm vegna langvarandi þurrka í Eþíópíu ​

Síðastliðin þrjú rigningatímabil í Eþíópíu hafa brugðist með tilheyrandi uppskerubresti, vatnsskorti og búfjárdauða sem skilið hafa hundruð þúsunda barna og fjölskyldna eftir á heljarþröm. Landssvæði í suður- og austurhluta Eþíópíu, Afar, Oromia, SNNPR og Somali héruð, hafa orðið verst úti. „Áhrif þessara þurrka eru skelfileg,“ segir Gianfranco Rotigliano, fulltrúi UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Eþíópíu.

Heimsmarkmiðin
Fréttamynd

Andstæðingar ríkisstjórnar Eþíópíu fylkja liði

Her Eþíópíu hefur kallað hermenn sem sest hafa í helgan stein aftur til starfa. Það var gert eftir að hópur fylkinga landsins sem eru andvíg ríkisstjórn Abiy Ahmed, forsætisráðherra, fylktu liði og vilja koma honum frá völdum.

Erlent