Íþróttafréttamaður

Valur Páll Eiríksson

Valur Páll er íþróttafréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

16 ára setti vallarmet á Ís­lands­mótinu

Hinn 16 ára gamli Hjalti Kristján Hjaltason, kylfingur úr GKG, setti vallarmet á nýjum Korpúlfsstaðavelli á Íslandsmótinu í golfi í dag. Hann verður í ráshópi með efstu kylfingum á morgun.

Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik

Þeir Stefán Ingi Sigurðarson og Alfons Sampsted voru báðir í byrjunarliði Go Ahead Eagles sem vann 4-1 sigur á Willem II í fyrsta leik tímabilsins í hollensku úrvalsdeildinni.

Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn

Hlín Eiríksdóttir var í byrjunarliði Malmö sem tapaði 2-0 fyrir Eintracht Frankfurt í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld.

Dag­bjartur eykur for­ystuna

Dagbjartur Sigurbrandsson jók forystu sína fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík. Hann lék hring dagsins á tveimur undir pari og er með sex högga forystu.

Framherjaleit Breiðabliks lokið

Breiðablik hefur gengið frá kaupum á Þorleifi Úlfarssyni sem mun leika með liðinu í Bestu deild karla. Blikar hafa verið sagðir í leit að framherja og Þorleifur kemur til liðsins eftir að hafa verið þar síðast í fyrra.

Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“

„Þetta verður hörkuleikur. Þetta eru tvö lið að mætast sem eru ekki á stað sem þau vilja vera á. Það er einfaldlega staðreyndin. Þau eru þar,“ segir Matthías Guðmundsson, þjálfari kvennaliðs Vals í fótbolta, um leik kvöldsins við Víking í Bestu deild kvenna.

Sjá meira