Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli Tættur Laugardalsvöllur blasti við landanum þegar kvennalandsliðið í fótbolta atti kappi við Úkraínu og England á dögunum. Margur klóraði sér í kollinum yfir því hvernig á því stæði þegar nýlega hafi nýtt hybrid undirlag verið lagt á völlinn. Það á sér hins vegar eðlilegar skýringar. 21.4.2026 10:02
KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Stuðningsmenn KR sem hugðust fara til Vestmannaeyja og sjá leik karlaliðs félagsins í fótbolta við ÍBV geta ekki farið í dagsferð á leikinn. Samgöngur til og frá Vestmannaeyjum eru skertar sökum bilunar í Herjólfi og lokunar Landeyjahafnar. 21.4.2026 09:00
Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val Valur hefur fest kaup á Helgu Rut Einarsdóttur frá Breiðabliki. Helga Rut er fyrirliði U19 ára landsliðs Íslands og yfirgefur Blika eftir rúmlega árs dvöl í Kópavogi. 20.4.2026 12:45
„Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ „Hann bara stjórnar miðjunni fyrir KR,“ segir Baldur Sigurðsson í Stúkunni um Hrafn Tómasson, sem var maður leiksins er KR vann 5-2 sigur á Þór í Bestu deild karla á föstudaginn var. Hrafn hefur skinið skært í upphafi móts. 20.4.2026 11:30
Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar David Raya, markvörður Arsenal, ræddi við Hjörvar Hafliðason eftir svekkjandi 2-1 tap toppliðsins fyrir Manchester City á Etihad-vellinum í gær. Raya segir nóg eftir af tímabilinu og fleiri tækifæri bíði Arsenal-liðsins. 20.4.2026 11:01
Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Tottenham hefur tilkynnt kynþáttaníð í garð austurríska varnarmannsins Kevin Danso til lögreglu. Félagið fordæmir fordómana sem Danso hefur orðið fyrir eftir 2-2 jafntefli liðsins við Brighton um helgina. 20.4.2026 10:30
KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ KR vann öruggan 5-2 sigur á nýliðum Þórs frá Akureyri að Meistaravöllum í annarri umferð Bestu deildar karla í fótbolta. KR er efst í deildinni eftir sigurinn. 17.4.2026 20:30
Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, segir sína menn hafa mætt ofjarli sínum í 5-2 tapi fyrir KR að Meistaravöllum í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Mörg lið í Skandinavíu ráði ekki við KR í þeim gír sem liðið var í. 17.4.2026 20:26
„Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Þau tvö mörk sem KR fékk á sig í 5-2 sigri á Þór frá Akureyri í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld sitja meira í Óskari Hrafni Þorvaldssyni, þjálfara KR, heldur en frábær frammistaða hans manna fram á við. 17.4.2026 20:14
Besta sætið: Upp með hausinn Arsenal-menn! Besta sætið heilsaði á Bestu deildar föstudegi. Þá er stórleikur fram undan hjá kvennalandsliðinu og risahelgi í enska boltanum. 17.4.2026 15:03