Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Fyrsti þáttur Hvað er að frétta? fór í loftið á Vísi í gær og hefur þegar vakið nokkra athygli fyrir efnistök og umgjörð. Hægt er að berja fyrsta þáttinn augum hér fyrir neðan. 12.9.2026 11:00
Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Saga sem hefur farið eins og eldur í sinu síðustu daga og vikur reyndist vera flökkusaga sem hefur tekið stakkaskiptum í meðferð almennings líkt og um stærðarinnar hvísluleik væri að ræða. Sagan minnir því nánast á þjóðsögu. 11.9.2026 06:01
„Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Landlæknir lítur átök innan SÁÁ mjög alvarlegum augum en starfsemi samtakanna er nú til skoðunar hjá embættinu. Mikilvægast sé að tryggja öryggi og gæði þjónustu að mati landlæknis sem telur uppsagnir áhyggjuefni. 10.9.2026 12:03
Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar Rótin, félag um konur, áföll og vímugjafa, segir átök innan SÁÁ vera enn eina birtingarmynd langvarandi veikleika í skipulagi þeirrar þjónustu sem samtökin reka. Ríkið eigi að tryggja að skýr mörk séu á milli framkvæmdastjórnar SÁÁ og faglegrar yfirstjórnar sjúkrahússins Vogs og annarrar þjónustu. 9.9.2026 16:44
„Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Barnabókahöfundur segir nóg komið eftir að Bókasafnssjóður var skorinn niður um tugi milljóna króna. Menningarráðherra segir aukið fjármagn til bókmennta væntanlegt og því skuli spyrja að leikslokum. 8.9.2026 12:11
Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Kjörstöðum hefur verið lokað í Saxlandi-Anholt og miðað við fyrstu útgönguspár lítur allt út fyrir að það stefni í stórsigur fjarhægriflokksins AfD. 6.9.2026 16:32
Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið lögð inn á sjúkrahús. Hún hafði fundið fyrir vanlíðan samkvæmt upplýsingum frá konungsfjölskyldunni. 6.9.2026 16:02
Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Ökumaður missti stjórn á bifhjóli sínu með þeim afleiðingum að hann keyrði út af Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði á þó nokkrum hraða. 6.9.2026 15:29
Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti Hopp-deilibíl eftirför frá Lágmúla að Víðidal í dag. Ökumaður Hopp-bílsins er talinn hafa verið undir áhrifum en hann ók utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvö lögreglubíla á för sinni. Hann er sagður hafa ekið á allt að 140 kílómetra hraða. 6.9.2026 13:04
Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Íbúar Saxlands-Anhalt í Þýskalandi ganga til kosninga í dag en kjörstaðir voru opnaðir klukkan átta að staðartíma. Straumhvörf gætu orðið í sambandsríkinu og pólitísku landslagi Þjóðverja í kjölfar kosninganna. 6.9.2026 12:44