Umdeild saga Lýðræðislega sambandsflokksins Lýðræðislegi sambandsflokkurinn styður minnihlutastjórn Íhaldsflokksins á Bretlandi. Norður-Írar fá milljarð punda fyrir stuðninginn. Saga flokksins og stefna er skrautleg og auðkennist af mikilli íhaldssemi. 1.7.2017 12:00
Þýskalandskanslari í beinni andstöðu við Bandaríkjaforseta Loftslagsmálin verða í forgangi á fundi G20 ríkjanna. Þetta hefur Þýskalandskanslari ákveðið. Forseti Bandaríkjanna verður eini fundargesturinn sem vill ekki taka þátt í Parísarsamkomulaginu. 30.6.2017 07:00
Borgarastyrjöld eða aðeins einangrað tilvik Lögreglumaður stal þyrlu og varpaði sprengjum á hús hæstaréttar í Venesúela. Ekki er ljóst hvort hann nýtur raunverulegs stuðnings. Forsetinn segir árásina hryðjuverk og tilraun til valdaráns og grunar að Bandaríkjastjórn styðji slíkt. 29.6.2017 07:00
Bólusetja við tölvuveirum Hægt er að bólusetja tölvur við gagnagíslatökuveiru sem skók heiminn fyrr í vikunni og hafði meðal annars áhrif á úkraínska seðlabankann, rússneska olíufyrirtækið Rosneft og spítala í Pittsburgh í Bandaríkjunum. 29.6.2017 07:00
Ný ríkisstjórn ósanngjörn í garð Wales Samkomulag Íhaldsflokksins á Bretlandi við hinn norðurírska Lýðræðislega sambandsflokk (DUP) um að styðja minnihlutastjórn fyrrnefnda flokksins er afar ósanngjarnt í garð annarra þjóða Bretlands. 27.6.2017 06:00
Fríverslunarsamningur við ESB ekki sjálfgefinn Brexitmálaráðherra segir líklegt, þó ekki öruggt, að fríverslunarsamningur náist við Evrópusambandið. Enginn samningur væri þó betri en samningur sem væri til þess gerður að refsa Bretum fyrir væntanlega útgöngu úr sambandinu. 26.6.2017 07:00
Múslimar fagna föstulokum Múslimar um gjörvallan heim fögnuðu í gær hátíðardeginum Eid al-Fitr. Dagurinn markar lok föstumánaðarins Ramadan og var bænahald sem og átveislur af því tilefni víða um heim. 26.6.2017 07:00
Mannskæður eldsvoði í Pakistan Að minnsta kosti 140 fórust þegar kviknaði í olíuflutningabíl í pakistönsku borginni Ahmedpur í gær. 26.6.2017 07:00
Leiðtogi stjórnarandstöðu fær ekki að bjóða sig fram Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Rússlandi, var í gær meinað að bjóða sig fram til forseta en forsetakosningar fara fram þar í landi á næsta ári. Miðstjórn kosninga í Rússlandi kvað upp úrskurð sinn þess efnis í gær og byggist hann á því að Navalny var dæmdur sekur fyrir fjárdrátt. Hann er nú á skilorði. 24.6.2017 07:00
Katörum sett ströng skilyrði Fjögur Arabaríki hafa sent Katörum strangar kröfur, eigi þau að aflétta þvingunum gegn katarska ríkinu. Ríkin sem um ræðir eru Sádi-Arabía, Egyptaland, Bahrein og Sameinuðu arabísku furstadæmin. 24.6.2017 07:00