Fréttamaður

Þórarinn Þórarinsson

Þórarinn er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ás­grímur Halldórs­son slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave

„Danirnir höfðu engar áhyggjur af þessu. Það er það eina sem ég veit,“ segir Ægir Birgis­son, skip­stjóri Ás­gríms Halldórs­sonar, nýs upp­sjávar­skips, sem er í smíðum á Skagen í Dan­mörku og slitnaði frá bryggju þegar stormurinn Dave gekk með látum yfir Jót­land á páska­dag.

Ljós­myndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman

Þolin­mæði ljós­myndarans Her­manns Helgu­sonar er þrotin og út­lit fyrir að hann neyðist til að höfða mál á hendur ferðaþjónustu­fyrir­tækjum sem hik­laust og ítrekað skreyta markaðs­efni sitt með lands­lags­myndum sem teknar eru ófrjálsri hendi af sam­félags­miðlum hans.

Mót­efni gegn af­mennskun og kúgun

Gus­Gus ætlar að sprengja sumarið í gang í lok maí með heil­mikilli dansveislu sem Biggi Veira lýsir sem ákveðnu viðbragði við af­mælistón­leikum síðasta árs þar sem miklu færri en vildu komust að þegar bandið reif stemninguna í Höllinni í tætlur.

Förgun bóka á­þekk því að lóga gælu­dýrum

Þær notuðu bækur sem Bjarni bók­sali Harðar­son í Bóka­kaffinu tekur við í tonna­tali komast, eðli málsins sam­kvæmt, ekki allar í endur­sölu og enda í Sorpu­gámum. Með Bjarna sem milli­lið friðar fólk þó sam­viskuna enda segir hann förgun bóka ekki ósvipaða því að að lóga gælu­dýrum.

Peru­tertan lifir af inn­gildingu heilsu­fæðis á Al­þingi

Styggð kom að sæl­kerum á Alþingi við ný­lega inn­gildingu heilsu­fæðis í þing­húsinu. Sumir hverjir óttuðust um sögu­fræga tertu­hefð í þing­húsinu og vildu kenna þing­flokks­for­manni Sam­fylkingarinnar um meinta aðför að kræsingunum. Hann kannast þó hvorki við að hafa slíkt áhrifa­vald né stæka andúð á kökum.

Of stór biti að kyngja án íbúa­kosningar

„Ég er mjög óánægður með þá ákvörðun meiri­hluta sveitar­stjórnar Skaga­fjarðar að veita ekki íbúum mögu­leika á að kjósa um menningar­hús,“ segir Daniel Þór Gunnars­son sem hugðist með undir­skriftasöfnun þrýsta á um íbúa­kosningu sem sveitar­stjórn Skaga­fjarðar sló út af borðinu á mið­viku­dag.

Fall Vals í Af­ríku ætlar að reynast dýr­keypt

„Það sem ég hélt að væri tognun reyndist vera þvagsýrugigt sem leyndi fót­broti sem þróaðist út í æðatappa,“ skrifaði Valur Gunnars­son, rit­höfundur og sagn­fræðingur með meiru þegar hann sendi út hjálpar­beiðni á Face­book í dag.

Menningar­húsið fer ekki í íbúakosningu

Einar Einars­son, for­seti sveitar­stjórnar Skaga­fjarðar, lét á fundi hennar í gær færa til bókar að það verði „gleði­dagur“ þegar starf­semi hefst í fyrir­huguðu menningar­húsi á Sauðárkróki. Meiri­hlutinn felldi síðan til­lögu um íbúa­kosningu um bygginguna sem Einar segir að verði „glæsi­leg menningar­miðstöð.“

Kolin hitna undir menningar­húsinu á Króknum

Sveitar­stjórn Skaga­fjarðar fjallar í dag um fyrir­hugaða undir­skriftasöfnun vegna byggingar um­deilds menningar­húss á Sauðárkróki. Jóhanna Ey Harðar­dóttir, full­trúi Byggðalista, segist vona að söfnunin verði samþykkt átaka­laust.

Gunnar Smári lagstur í sjúkrarúm Maríu Lilju

Gunnar Smári Egils­son, höfuðpáfi Sam­stöðvarinnar, segir mikið á þann litla vinnustað lagt þar sem hann er aftur lagstur inn á hjarta­deild Land­spítalans og nú í sama rúm og vinnu­félagi hans, María Lilja Ingveldar-Þrastar­dóttir Kemp, losnaði úr ný­lega.

Sjá meira