Minden keypti Erling af ÍBV Handboltaþjálfarinn Erlingur Richardsson hefur verið ráðinn þjálfari þýska 2. deildarfélagsins Minden og er því hættur sem þjálfari ÍBV í Olís-deildinni. 28.9.2026 10:49
Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Gerson Rodrigues, markahæsti leikmaður landsliðs Lúxemborgar frá upphafi, er í banni frá landsliðinu og mun því ekki mæta Íslandi í leiknum mikilvæga í Þjóðadeildinni annað kvöld. 28.9.2026 10:33
Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Líf Joostdóttir van Bemmel heldur upp á 19 ára afmæli sitt í Króatíu í næstu viku því hún hefur nú í fyrsta sinn verið valin í íslenska A-landsliðið í fótbolta. Það toppar stórkostlegt sumar hjá þessum leifturhraða, hollenskættaða leikmanni Breiðabliks. 28.9.2026 09:04
HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Vozinha, hinn fertugi markvörður Grænhöfðaeyja sem sló rækilega í gegn á HM í fótbolta í sumar, er leiður yfir allri athyglinni sem fylgir nýfenginni frægð. Núna fær hann hvergi frið fyrir fólki og jafnvel foreldrar hans eru ásóttir. 28.9.2026 08:30
Sjáðu vörslurnar: „Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn“ Bjarni Guðjónsson og Kári Árnason dásömuðu markvörðinn Hákon Rafn Valdimarsson og sögðu hann langbesta leikmann Íslands í 1-1 jafnteflinu við Eistland í Þjóðadeildinni á laugardag. 28.9.2026 08:02
„Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Heimir Hallgrímsson var ákaflega stoltur af leikmönnum sínum í írska landsliðinu í fótbolta sem rúlluðu yfir Ísraela, 3-0 í Ungverjalandi í gærkvöld, eftir langan og einstaklega erfiðan aðdraganda að leiknum. 28.9.2026 07:28
Sjáðu stórkostlega aukaspyrnu Daníels Tristans gegn Frökkum Daníel Tristan Guðjohnsen jafnaði metin gegn Frakklandi í dag, í leik með U21-landsliði Íslands, með mögnuðu marki beint úr aukaspyrnu. Markið má sjá á Vísi. 25.9.2026 16:25
Lærisveinn Heimis tók af skarið: „Leikurinn við Ísrael ætti ekki að fara fram“ Jason Knight, einn af lærisveinum Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu í fótbolta, segir að í sínum huga ætti leikurinn við Ísrael í Þjóðadeildinni á sunnudag ekki að fara fram. Hann muni harka af sér en geðjast augljóslega ekki að mæta Ísraelsmönnum. 25.9.2026 15:47
Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Manchester City verður dæmt sekt í öllum nema einum af 115 ákæruliðum, fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 25.9.2026 14:17
Kósíheit inni og volg mjólk eftir æfingu: „Galið að skjóta svona á okkar kynslóð“ Það var létt yfir Arnari Gunnlaugssyni landsliðsþjálfara en þó alvarlegur undirtónn þegar hann ræddi um áhrif fótboltahallanna á íslenskan fótbolta. Arnar sagði Íslendinga hafa misst svolítið af hörkunni sem þeir höfðu fyrir tíma hallanna. 25.9.2026 13:32