Óbreytt klukka stöðutaka gegn vísindum og lýðheilsu Óbreytt klukka er stöðutaka gegn vísindum og lýðheilsu að sögn Erlu Björnsdóttur sálfræðings og sérfræðings um svefn. Hún eygir von um að stjórnvöld taki ákvörðun um að samræma klukkuna gangi sólar í ljósi þess að slík leiðrétting sé nú komin á dagskrá grænlenska þingsins, Inatsisartut. 7.11.2025 19:21
„Set alvarlegt spurningamerki við að draga út einstaka þjóðerni fólks“ Kennari við íslensku og menningardeild Háskóla Íslands segist ekki skilja á hvaða vegferð dómsmálaráðherra sé með breytingar hennar á fyrirkomulagi námsleyfum. Hún setji alvarlegt spurningamerki við að draga út einstaka þjóðerni fólks og gera það tortryggilegt. Betur færi á því að taka því fagnandi að fólk utan úr heimi vilji læra íslensku. 7.11.2025 13:29
„Mig langar til að tala eins og Íslendingur – nákvæmlega eins og Íslendingur“ Gullöld íslenskrar tungu er runnin upp að mati kennara við Háskóla Íslands sem vísar til þess að á áttunda hundrað læra nú íslensku sem annað mál við skólann. Margrét Helga fréttamaður hitti þrjá nemendur á öðru ári sem tala reiprennandi íslensku, elska orðin jökulhlaup og landkynning og tárast yfir textum Unu Torfa. 7.11.2025 07:00
Heiðra minningu Sigurðar Kristófers með Neyðarkallinum í ár Sala Neyðarkalls Landsbjargar er í ár í hlutverki straumvatnsbjörgunarmanns til að heiðra minningu Sigurðar Kristófers McQuillans Óskarssonar, formanns björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, sem lést í hörmulegu slysi á sameiginlegri straumvatnsbjörgunaræfingu á vegum Landsbjargar í nóvember í fyrra. 5.11.2025 22:43
Tíu ung börn voru orðin verkjuð og hjólbeinótt vegna beinkramar Barnalæknir hefur á síðasta áratug greint tíu börn á aldrinum 18-27 mánaða með beinkröm, sjúkdóm sem Ísland hafði á sínum tíma náð að útrýma. Hún segir íslensk börn almennt fá allt of lítið af D-vítamíni. Fáar sólarstundir hér á landi bæti síðan gráu ofan á svart. 5.11.2025 20:06
Martraðarkennd reynsla í fangelsi hjóm í samanburði við þjáningu Palestínumanna Margrét Kristín Blöndal, baráttu- og tónlistakona, og fólkið sem var um borð með henni í Frelsisflotanum máttu þola ómannúðlega meðferð í ísraelsku fangelsi. Hún lýsir því hvernig hermenn hafi bundið fyrir augun á fólkinu, það neytt til þess að krjúpa með hendur teygðar fram tímunum saman og að fólki hafi ekki verið hleypt á salerni til gera þarfir sínar. Þá hafi hita- og kuldablæstri í klefum verið beitt til að brjóta fólkið niður. 13.10.2025 18:15
Þakklát Möggu Stínu og segir vopnahlé ljósið við enda ganganna Tilviljunin ein réði því að Dr. Varsen Aghabekian, utanríkisráðherra Palestínu, væri stödd á Íslandi þegar heimsögulegar fréttir um vopnahlé á Gasa berast. Fréttastofa fékk að fylgja Dr. Varsen eftir á nokkrum stöðum í dag 9.10.2025 19:39
„Ég ætla ekki að jarða hann, ég ætla að hafa hann á lífi“ Íslenskar mæður hafa í örvæntingu sinni ákveðið að senda syni sína í meðferð til Suður-Afríku til að bjarga lífi þeirra. Þeim ber saman um að íslensku úrræðin séu vonlaus og brotin, auk þess sem fíkniefni flæði innan veggja þeirra. 8.10.2025 19:31
Sér fram á margar klukkustundir í fullkominni óvissu Dóttir Möggu Stínu er í áfalli yfir því að ísraelski sjóherinn hafi handtekið móður hennar þrátt fyrir að hún hafi vitað að handtaka væri mögulega yfirvofandi. Þetta sé veruleiki sem hún eigi erfitt með að meðtaka og því biðlar hún til stjórnvalda að fordæma handtökuna og að koma móður hennar heim sem allra fyrst. 8.10.2025 14:03
Hafa rætt við ísraelsk stjórnvöld og sett fram kröfur vegna Margrétar „Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur málið á sínu borði; málefni íslensks ríkisborgara, sem við vitum hver er, sem var handtekinn í aðgerðum ísraelskra stjórnvalda í nótt og auðvitað fylgjumst við náið með þróun mála,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra vegna frétta um að Margrét Kristín Blöndal, íslenskur ríkisborgari, hefði verið handtekin af ísraelska sjóhernum í nótt. 8.10.2025 12:09