Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Leikkonan Edda Björgvinsdóttir átti óvænta innkomu í sýningunni Þetta er Laddi í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Þar steig hún inn í nokkur atriði með karakterum sem eru henni góðkunnir og mun hún fara með hlutverk í sýningunni á völdum dagsetningum út vorið. 20.3.2026 13:55
Ástrós og Adam eiga von á öðru Dansarinn og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir og frumkvöðullinn Adam Karl Helgason eiga von á öðru barni sínu saman. Fyrir eiga þau eina dóttur sem fæddist 2023. 20.3.2026 13:33
Breyta Reykjavík í kvikmyndagallerí út mánuðinn Vegfarendur um miðborg Reykjavíkur munu út mánuðinn sjá borgina umbreytast í kvikmyndagallerí þegar hreyfimyndum verður varpað á byggingar og skjái víðsvegar í tilefni af Physical Cinema Festival sem tengist Stockfish-kvikmyndahátíðinni. 20.3.2026 10:57
Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Eigandi Mengis setti fasteignina sem hefur hýst tónleikastaðinn frá 2013 á sölu. Hann er þó ekki alveg ákveðinn í að selja heldur setti hann eignina á sölu til að hreyfa við fólki og telur það hafa tekist með nýjum samningi við Reykjavíkurborg. Mengi sé langtímalistaverk og framtíð þess óráðin. 20.3.2026 06:30
Afroman fagnaði sigri gegn sjö lögregluþjónum Rapparinn Joseph Edgar Foreman, betur þekktur sem Afroman, hafði betur gegn sjö lögregluþjónum sem höfðuðu meiðyrðamál gegn honum vegna myndefnis sem hann birti af þeim í tónlistarmyndbandi við lagið „Lemon Pound Cake“ og textum af samnefndri plötu. Afroman hæddist að þeim með myndefni úr öryggismyndavélum af því þegar þeir gerðu rassíu á heimili hans, söng svo um að hafa sofið hjá eiginkonu eins lögregluþjónsins og rappaði um munnmök annars þeirra. 19.3.2026 15:13
Jay-Z breytir um nafn... aftur Rapparinn og athafnamaðurinn Shawn Carter, betur þekktur sem Jay-Z, hefur ákveðið að breyta listamannsnafni sínu og setja tvípunkt ofan á ypsilonið. Rapparinn kom fram sem JAŸ-Z á fyrstu plötu sinni en losaði sig svo við tvípunktana. 19.3.2026 12:53
Spacey sleppur við dómsalinn með sátt við þrjá menn Leikarinn Kevin Spacey hefur gert sátt við þrjá menn sem sökuðu hann um kynferðisofbeldi yfir margra ára tímabil. Málið átti að fara fyrir dómara í Lundúnum síðar á þessu ári en ekki verður af því. Fjöldi karlmanna steig fram í MeToo-bylgjunni og sakaði Spacey um kynferðisbrot en málin hafa ýmist verið felld niður eða hann sýknaður. 19.3.2026 10:59
Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í kvöld í Hörpu við hátíðlega athöfn. Fjöldi tónlistarmanna steig á svið og var veislustjórn í höndum Friðriks Ómars. Laufey Lín var hlutskörpust með fern verðlaun, Sara Mjöll Magnúsdóttir var valin bjartasta vonin og hljómsveitinni Todmobile voru veitt heiðursverðlaun. 18.3.2026 21:20
Gæðastund með gæðablóðum Leikritið Gæðablóð var frumsýnt fimmtudaginn 12. mars á stóra sviði Þjóðleikhússins. Fjöldi góðra gesta úr leikhússenunni, menningarbransanum og öðrum geirum mætti til að sjá þá Unnstein Manúel Stefánsson, Jónmund Grétarsson og Davíð Þór Katrínarson stíga á svið. 18.3.2026 16:41
Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Rapparinn Birnir fékk í dag afhenta gullplötu fyrir sölu á plötunni Dyrnar en hún hefur selst í 2.500 eintökum á innan við ári. Jafnframt fékk hann afhentar platínuplötur fyrir fyrstu tvær plötur sínar. 18.3.2026 15:24