Hlýnar um helgina Áfram verður svalt í dag og á morgun en um helgina fer að hlýna. Grunnar lægðir fara nú austur með suðurströndinni. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að þeim fylgi lítilsháttar úrkoma öðru hverju og frekar hægur vindur. 17.4.2024 08:04
Skrifstofa Alþingis tekur dóm MDE til skoðunar Forseti Alþingis hefur óskað þess að skrifstofa Alþingis taki niðurstöðu dóms frá Mannréttindadómstóli Evrópu til skoðunar. Íslenska ríkið er í dómi talið brjóta gegn rétti til frjálsra kosninga. Þingkona Samfylkingar tekur málið upp á morgun í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. 16.4.2024 14:04
Kjósa þarf aftur til biskups Kjósa þarf aftur á milli þeirra Guðrúnar Karls Helgudóttur og Guðmundar Karls Brynjarssonar vegna þess að ekki fékkst meirihluti í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag í biskupskjöri. Kosið verður aftur þann 2. maí. 16.4.2024 13:45
Brotið gegn rétti til frjálsra kosninga: Höfðu betur í talningamálinu Mannréttindadómstóll Evrópu komst að því í dag að brotið hafi verið á rétti þeirra Magnúsar D. Norðdahl og Guðmundar Gunnarssonar í talningamálinu svo kallaða í Norðvesturkjördæmi. Íslenska ríkinu er gert að greiða þeim bætur. 16.4.2024 09:08
Leitinni að foreldrunum lauk á hörmulegum nótum Tinna Rúnarsdóttir hóf leit að blóðforeldum sínum á Srí Lanka fyrir um mánuði. Þar fæddist hún í nóvember árið 1984. Þremur mánuðum síðar var hún ættleidd til Íslands. Tinna sagði sögu sína á Vísi um helgina og fékk á sama tíma afar erfiðar fréttir um afdrif blóðforeldra sinna. 15.4.2024 15:02
Engin skjálftavirkni eftir miðnætti Smáskjálftahrinunni sem hófst í gær við Lágafell, rétt norðvestan við Grindavík, lauk um klukkan hálf fjögur í gær. Alls voru skjálftarnir um 90 talsins og var virknin mest um klukkan 13 og 14 í gær þegar 35 skjálftar mældust. 15.4.2024 11:26
Hríðarveður og erfitt yfirferðar á Norðurlandi í dag Varað er við hríðarveðri og allhvössum vindi yfir miðjan daginn á Norðurlandi. Búast má því að það verði víða blint og erfitt yfirferðar norðanlands. Einkum í Húnaþingi og Skagafirði, en einnig við utanverðan Eyjafjörð og austur með ströndinni. 15.4.2024 10:11
Geta sent ökumönnum skilaboð í rauntíma á nýjum skiltum Vegagerðin vonast til þess að geta komið upplýsingum til ökumanna á fjallvegum með skilvirkari leiðum á nýjum skiltum. 15.4.2024 09:09
Börnin spennt að taka þátt í „stórubarnaverkefni“ Hildur Lilja Jónsdóttir fagstjóri leikskóla hjá Reykjavíkurborg segist skilja kvíða margra foreldra yfir því að barnið þeirra eigi að fara fyrr yfir í frístund en áætlað var. Hún segir börnin þó vel undirbúin og að fagmenntað fólk taki á móti þeim sem hún treysti vel. 14.4.2024 08:01
Alls 42 andmælt ástandsskoðunum NTÍ í Grindavík Alls hafa 42 sent inn andmæli vegna matsgerðar Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ) vegna tjónamála í kjölfar náttúruhamfaranna í Grindavík. Alls hafa borist 495 tilkynningar til NTÍ þannig um er að ræða um 8,5 prósent tilkynninga. 13.4.2024 08:59