Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Allt að sjö ára bið er eftir notendastýrðri persónulegri aðstoð fyrir fatlað fólk eða NPA. Baráttumaðurinn Haraldur Ingi Þorleifsson segir reynt að fæla fólk frá því að sækja um. Aðstandendur séu settir í þá stöðu að fórna sér fyrir ástvini og endi jafnvel sjálfir á örorku og brotnir. 24.9.2025 18:58
„Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Ungri konu sem er lesblind, með ADHD og einhverf var talin trú um að skólinn væri ekki fyrir hana. Hún segir mikilvægt að börn í sömu stöðu gefist ekki upp. Þrátt fyrir að hafa rétt náð að ljúka grunnskóla og ekki farið í gengum framhaldsskóla útskrifaðist hún úr háskóla í vor. Hún brennur nú fyrir því að hjálpa öðrum í sömu stöðu. 24.9.2025 09:17
Holskefla í kortunum Krabbameinstilfellum á Íslandi mun fjölga um meira en helming á næstu tveimur áratugum ef spár ganga eftir. Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins hefur áhyggjur af því hvort heilbrigðiskerfið muni ráða við þennan fjölda sjúklinga og segir mikilvægt að brugðist sé við. 23.9.2025 22:02
Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir grafalvarlegt að drónum hafi verið flogið yfir flugvelli Kaupmannahöfn og Osló í gær. Hún segir það ástæðu til að kalla saman þjóðaröryggisráð og hægt sé að gera það um leið og hún kemur aftur frá Bandaríkjunum. 23.9.2025 17:56
Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Inga Sæland segist hafa skipt um skoðun á bókun 35 eftir að hafa rakið garnirnar úr sérfræðingum við stjórnarmyndun í vetur. Um sé að ræða neytendavernd sem verndi borgarana betur. 23.9.2025 13:02
Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Starfandi forsætisráðherra lítur ólöglega drónaumferð í Evrópu grafalvarlegum augum. Hún segir Íslendinga þurfa að átta sig á gjörbreyttu landslagi og vera vel á verði. 23.9.2025 11:59
Fólk hvatt til að taka strætó Bíllausi dagurinn er í dag og eru landsmenn hvattir til að skilja bílinn eftir heima. Til að auðvelda fólki þá er frítt í strætó um allt land. 22.9.2025 12:46
Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Heilbrigðiskerfið þarf að vera aðgengilegra þeim sem glíma við andleg veikindi að mati biskups Íslands. Hún segir óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi og miður að sjálfsvígum hafi ekki fækkað þrátt fyrir opnari umræðu. 10.9.2025 19:14
„Við munum reyna að bæta öll mál“ Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir stóra málið á komandi þingi að ná niður verðbólgu og lækka vexti. Flokkurinn ætli að beita sér í mikilvægum málum er varða heimilin og til að mynda reyna að tryggja að fólk geti áfram ráðstafað séreignasparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. 9.9.2025 12:04
Uppfæra ekki fríverslunarsamning og banna tvo ráðherra Fríverslunarsamningur Íslands og annarra EFTA-ríkja við Ísrael verður ekki uppfærður og tveir ísraelskir ráðherrar verða settir í farbann, sem felur í sér að þeir mega ekki ferðast til Íslands og mega ekki fara um íslenska lofthelgi. Þá verða vörur frá hernumdum svæðum Ísraela merktar, auk þess sem farið verður í aðrar aðgerðir. 8.9.2025 18:56