Sextán fórust í námuslysi í Kína Kolmónoxíðeitrun varð sextán kolanámumönnum að bana í suðvestanverðu Kína í dag. Aðeins einn þeirra sem festust í námunni komst lífs af og er hann sagður á sjúkrahúsi. 27.9.2020 08:11
Fjórir erlendir ferðamenn handteknir, grunaðir um brot á sóttkví Erlendur ferðamaður sem var handtekinn í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi er grunaður um brot á sóttkví. Maðurinn er sagður hafa verið afar ölvaður og reynt að efna til slagsmála. Þrír aðrir erlendir ferðamenn voru handteknir fyrir að brjóta sóttkví í gærkvöldi. 27.9.2020 07:37
Stærsti jarðskjálfti í Bárðarbungu frá því í apríl Jarðskjálfti upp á 4,8 að stærð varð í austanverðri Bárðarbungu rétt eftir miðnætti í nótt. Hann er sá stærsti í eldstöðinni frá því í janúar og apríl en þeir skjálftar voru jafnstórir þessum. 27.9.2020 07:24
Árásarmaðurinn sagður hafa verið á eftir starfsmönnum Charlie Hebdo Ungur maður sem er talinn hafa sært tvennt með kjötöxi utan við fyrri skrifstofur skopritsins Charlie Hebdo í París í gær segir lögreglu að skotmark hans hafi verið starfsmenn blaðsins. 26.9.2020 14:34
Ríkisstjórnarmyndun í Líbanon farin út um þúfur Tilraunir til þess að mynda nýja ríkisstjórn í Líbanon eru farnar út um þúfur eftir að Mustapha Adib, tilnefndur forsætisráðherra, sagðist ekki vilja leiða ríkisstjórn sem væri dæmd til þess að springa. 26.9.2020 13:58
Flokksráð Miðflokksins fundar Fundur flokksráðs Miðflokksins hefst með ræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns, flokksins, klukkan 13:00 í dag. Á meðal efni fundarins er tillaga um boðun aukalandsþings. 26.9.2020 12:30
Á þriðja tug fórst með herflugvél í Úkraínu Liðsforingjaefni úr úkraínska flughernum voru meirihluti þeirra að minnsta kosti 25 sem fórust þegar herflugvél brotlenti nærri borginni Kharkiv í austurhluta Úkraínu í gærkvöldi. 26.9.2020 11:31
Sýn og Nova máttu reka saman dreifikerfi Landsréttur hafnaði kröfu Símans um að ógilda skyldi ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins og Póst- og fjarskiptastofnunar um að leyfa Sýn og Nova að samnýta tíðniheimildir vegna sameiginlegs reksturs á dreifikerfi fyrir farsímaþjónustu. 26.9.2020 11:00
Greiða atkvæði um frjálsa för innan Evrópu í Sviss Svisslendingar greiða atkvæði um hvort þeir vilja afnema frjálsa för fólks til og frá Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu á morgun. 26.9.2020 09:45
Sjö handteknir vegna stunguárásanna í París Lögreglan í París hefur handtekið sjö manns í tengslum við stunguárásir nærri fyrri skrifstofum skopritsins Charlie Hebdo í gær. Tvennt var sært í árásunum sem eru rannsakaðar sem hryðjuverk 26.9.2020 09:03