Erlendir ríkisborgarar rúmlega helmingur atvinnulausra Atvinnuleysi minnkaði um 0,2 prósentustig milli mánaða og mældist atvinnuleysi 3,7 prósent í maímánuði, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Um 54 prósent fólks á atvinnuleysisskrá eru erlendir ríkisborgarar. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir erfiðara að koma erlendu fólki aftur í vinnu. 11.6.2025 22:21
Viktor Arman lést af slysförum á Esjunni Maðurinn sem fannst látinn í hlíðum Kistufells á Esjunni síðdegis í gær hét Viktor Arman Kambizson. Hann var 22 ára. 11.6.2025 22:00
Hvalurinn kominn út á haf Háhyrningurinn sem strandaði í Grafarvogi í gærkvöldi er kominn út í haf og er frjáls ferða sinna. Hann var kominn út fyrir skerin við flæðarmálið um hálfsexleytið í dag, en björgunarmenn stugguðu við honum og fylgdu honum út fyrir grynningarsvæðið. 11.6.2025 19:04
Brian Wilson látinn Brian Wilson, einn stofnanda hljómsveitarinnar The Beach boys, er látinn 82 að aldri. 11.6.2025 17:04
Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm Najeb Hæstiréttur hefur staðfest fimm ára fangelsisdóm Najeb Mohammad Alhaj Husin, fyrrverandi starfsmanns grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra, fyrir brot, þar á meðal nauðgun, gegn stúlku í unglingadeild skólans. 11.6.2025 16:57
Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Dömur mínar og herrar. Ég heiti Inga Sæland. Ég er lögblind. Ég hef minna en 10 prósent sjón, hef aldrei ekið bíl eða séð haustlitina. En ég er félags- og húsnæðismálaráðherra - fyrsta manneskjan með fötlun sem gegnir ráðherraembætti á Íslandi.“ 10.6.2025 22:27
„Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ „Hjólið náttúrulega fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt ...Við erum mjög heppin að ekki hafi farið verr. Það er náttúrulega aðalatriðið að ekki hafi orðið slys á fólki.“ 10.6.2025 22:05
Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að nefhjól úr flugvél hefði lent á Austurvelli. Síðar barst þeim tilkynning um að flugvél hefði lent á Reykjavíkurflugvelli sem vantaði nefhjól. 10.6.2025 19:29
Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Maðurinn sem fannst á Esjunni á fjórða tímanum í dag fannst látinn í hlíðum Kistufells. 10.6.2025 18:42
Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík Heimabakarí -Eðalbrauð ehf., sem hélt utan um rekstur Heimabakarís á Húsavík, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Engar eignir fundust í búinu og skiptum var því lokið án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur, sem hljóða upp á 84,904,533 krónur. 10.6.2025 18:12