Ljóðelskir frambjóðendur sýna hvað í þeim býr Ýmis nýmæli voru kynnt í hinum gríðarlega vel heppnuðu oddvitaumræðum Sýnar og Vísis, meðal annars var til þess að gera óvænt athugað með ljóðrænuna í frambjóðendum, hvort þeir hefðu í sér hagyrta taug? Niðurstaðan var forvitnileg. 16.5.2026 12:32
Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Forkólfum golfklúbba landsins brá mörgum í brún þegar þeir litu bréf sem þeim barst frá lögmanni Stjórnsýslusviðs ÍSÍ, með milligöngu GSÍ, en þar kom fram að þeim sé óheimilt að synja einstaklingi um aðild á þeim forsendum að rými sé ekki til staðar í klúbbnum. 15.5.2026 14:43
Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Páll Steingrímsson segir að hann muni aldrei hætta að leita svara í hinu svokallaða „byrlunar- og símastuldsmáli“. Páll hefur tekið ákvörðun um að áfrýja málinu. 15.5.2026 12:32
„Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, prófessor við menntavísindasvið HÍ í sálfræði, hafnar því að Snorri Másson þingmaður Miðflokksins sé hafður að háði og spotti í spurningu sem var ein af áttatíu í lokaprófi á menntavísindasviði. 13.5.2026 15:06
Tvennt ólíkt að vera félagi í íþróttafélagi og iðkandi Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ segir tvennt ólíkt að vera félagi í íþróttafélagi og iðkandi. Óheimilt sé að meina fólki aðgengi að íþróttafélagi. Þetta segir Andri skýrt í lögum ÍSÍ. 12.5.2026 13:30
Golfklúbbum ber að hleypa öllum inn Miklum sögum fer af löngum biðlistum hjá stærstu golfklúbbum landsins. Nú hefur hins vegar Helga Þórðardóttir lögfræðingur Stjórnsýslusviðs ÍSÍ sent bréf til forsvarsmanna golfklúbba þar sem fram kemur að þeim beri beinlínis að hleypa öllum inn. Forsvarsmenn golfklúbba klóra sér í kollinum. 12.5.2026 10:03
Samfylkingin kveinkar sér undan stórskotahríð Viðreisnar Samfylkingarfólk hefur ekki alveg vitað hvaðan á sig stendur veðrið en flokkurinn hefur sætt gegndarlausri gagnrýni og skensi frá … Viðreisn, samstarfsflokki sínum í ríkisstjórn. 11.5.2026 15:20
Stjórnsýslan hafi lagt undir sig landið og miðin Pistill Halldórs Armands í Sunnudagsmogganum hefur sannarlega hitt í mark en þar fjallar hann um kerfi sem er að vaxa okkur yfir höfuð. Halldór gerir því skóna að þetta sé vegna þess að Íslendingar telji að hin sturlaða yfirbygging sé vegna þess að við teljum okkur þurfa að sanna fyrir umheiminum að við séum ekki kotbændur heldur þjóð meðal þjóða. Niðurstaðan er hins vegar nöturleg. 11.5.2026 13:32
„Ekki frekar en þegar Dagur var í framboði“ Eva B. Helgadóttir formaður yfirkjörstjórnar segir það af og frá að það eitt að bjóða fólki „Góðan daginn!“ geti talist áróður á kjörstað. 11.5.2026 11:10
„Sá gamli er miklu fallegri“ Lillý Valgerður Pétursdóttir fréttamaður Sýnar brá sér austur á dögunum til að taka púlsinn á íbúum varðandi komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún komst að ýmsu merkilegu – samgöngumálin voru vitaskuld efst á baugi – en í Fljótsdal rakst hún á kjörgrip sem nú, samkvæmt tilskipan yfirkjörstjórnar, hefur lokið leik. Aldargamall kjörkassi. 9.5.2026 09:02