Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson birti á dögunum færslu í Facebook-hópnum Garðabær – íbúar þar sem hann greinir frá því að maður, sem hann þekki ekki né kannist við, hafi verið á vappi fyrir utan heimili hans seint um kvöld. Nú biðlar hann til fólks að koma sér í samband við manninn. 16.6.2026 11:20
„Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi varð að ljúka sundi niður Lagarfljót snemma vegna ofkælingar en fljótið var kaldara en búist var við. Hann hóf sundið niður Lagarfljót um klukkan níu í gærkvöldi, mánudaginn 15. júní, en áætlað hafði verið að það tæki um sólarhring að synda þessa leið sem er um fimmtíu kílómetra löng. Tilgangurinn var að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. 16.6.2026 07:57
Hvetja fólk til að gerast gjafar: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæðablóð“ Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, er einn þeirra sem vakið hafa athygli á því að alþjóðlegi blóðgjafadagurinn hafi verið í gær, þann 14. júní. Blóðbankinn flutti í vetur af Snorrabraut í Reykjavík og yfir í Kringluna en aðstaðan er stórbætt og mun auðveldara fyrir blóðgjafa að koma og gefa blóð, að sögn yfirlæknis. Það sé alltaf vöntun á fleiri blóðgjöfum og hann hvetji alla til að kynna sér hvort þeir geti mögulegir orðið gjafar. 15.6.2026 15:07
Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Þjóðhátíðardagur Íslendinga er á miðvikudaginn, þann 17. júní, og í tilefni hans verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá um allt land. Í miðbæ Reykjavíkur verður götum lokað á meðan hátíðarhöldunum stendur en meðal þess helsta sem fram kemur í upptalningu dagskrárliða á vef borgarinnar er skrúðganga, tíu ára plötusnúður, fornbílasýning og harmonikkuball. 15.6.2026 13:21
Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Leikstjórinn Þórður Pálsson hefur verið fenginn til liðs við teymi sem vinnur nú að kvikmynd sem byggð er á hrollvekju- og spennuleiknum Dead by Daylight. Hann vakti víða athygli fyrir hrollvekjuna „Hin fordæmdu“ (á ensku The Damned) sem var frumsýnd í janúar 2025. Hann hefur einnig skapað og leikstýrt fyrstu íslensku Netflix Original þáttaröðinni „Brot“ (á ensku The Valhalla Murders) sem var frumsýnd á streymisveitunni árið 2020. 15.6.2026 09:06
Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur tilkynnt að börnum yngri en 16 ára verði bannað að nota samfélagsmiðla en verði bannið samþykkt á þingi muni það taka gildi vorið 2027. Hann segir, í ræðu sinni í Downingstræti, að samfélagsmiðlar geri börn óhamingjusöm, auðveldi eineltisfólki að níðast á börnum og séu „hannaðir til að vera ávanabindandi“. 15.6.2026 08:19
Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Anibal Hernandez er einn eigenda skemmtistaðarins Exit sem var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og skattsins aðfaranótt laugardags. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir lokunina og að dyraverðirnir sem nú starfi á staðnum starfi ekki hjá öryggisþjónustunni sem aðgerðirnar beindust gegn. 14.6.2026 15:18
Margaret Kerry er látin Margaret Kerry er látin, 97 ára að aldri. Kerry var fyrirmyndin að upprunalegu Skellibjöllu í kvikmyndinni Pétur Pan frá 1953. Á ferli sínum starfaði hún sem útvarpsmaður og lék meðal annars í tveimur þáttum af The Andy Griffith Show og þremur þáttum af The Little Rascals. 14.6.2026 12:39
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Kona var á sundi skammt frá landi á einni vinsælustu strönd Sydney í Ástralíu þegar gríðarstór hákarl réðst á hana en hún er nú í lífshættu. Íslendingur sem var á ströndinni þegar atvikið átti sér stað segist enn þá vera að meðtaka það, enda „eins og að vera stödd í einhverri kvikmynd“. Hún segir mikla umræðu hafa skapast meðal íbúa svæðisins en ótrúlegt þyki að hákarlinn hafi komist svona nálægt landi án þess að til hans sæist. 14.6.2026 10:56
Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa á Ermarsundi snemma í morgun, að sögn Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands en aðgerðin stóð yfir í um sex klukkustundir. Hann segir þetta vera í fyrsta sinn sem breski herinn fer um borð í rússneskt olíuskip á Ermasundi. 14.6.2026 08:52