„Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Ákvörðun dómstóls í Bretlandi um framsal Julian Assange til Bandaríkjanna markar kaflaskil í máli blaðamannsins að mati ritstjóra WikiLeaks 20.5.2024 21:01
Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Prófessor í stjórnmálafræði segir það stórfréttir að alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi farið fram á handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Stærstu fréttirnar séu þó þær að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi reynst algjörlega vanhæft til að takast á við aðstæðurnar. 20.5.2024 18:00
Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Alþjóðaglæpadómstóllinn hefur óskað eftir handtökuheimild á hendur Benjamín Nethanjahú, forsætisráðherra Ísraels og Yoan Gallant, varnarmálaráðherra landsins á grundvelli saka um stríðsglæpi. Dómstóllinn vill einnig handtaka þrjá leiðtoga Hamas samtakanna. 20.5.2024 11:53
Meint frelsissvipting, brottvísun og vöggustofubörn Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar meinta frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Sveitarstjórinn segir samfélagið í áfalli vegna málsins. 12.5.2024 18:01
Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar alvarlegt ofbeldisbrot í uppsveitum Árnessýslu. Til rannsóknar er meint frelsissvipting, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Þrír karlmenn og ein kona hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 12.5.2024 11:45
Hundruð létust í flóðum Hunduð létust í flóðum í Baghlan-héraði í norðurhluta Afganistan í dag og er óttast að tala látinna muni hækka. 11.5.2024 18:56
Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Ísraelsher hefur fyrirskipað þúsundum að yfirgefa Rafah en búist er við því að herinn ráðist þangað inn af fullum þunga á næstunni. 11.5.2024 18:05
Vendingar í Eurovision höllinni og forsetakosningar Miklar vendingar hafa verið í Arena höllinni í Malmö í dag þar sem úrslitakvöld Eurovision fer fram í kvöld. Allt virtist ætla að sjóða upp úr eftir að Hollendingum var vikið úr keppni og fjórar þjóðir neituðu að taka þátt í fánaathöfn. Þá er norski stigakynnirinn hættur við að koma fram. 11.5.2024 18:02
Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Lögmaður þriggja kvenna sem vísa á úr landi eftir helgi segir skjóta skökku við að íslensk stjórnvöld ætlist til þess að fórnarlömb mansals stigi fram og segi sögu sína, þegar viðbrögð ríkisins séu þau að handtaka fórnarlömbin og senda þau úr landi. Konurnar segjast allar hafa verið fórnarlömb mansals áður en þær komu hingað til lands. 11.5.2024 11:45
Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Fagstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands segir að einhverjar vikur geti verið í næsta eldgos á Reykjanesi. Kvika haldi áfram að safnast saman í Svartsengi en reynslan síni að sífellt meiri þrýsting þurfi til að koma af stað öðru kvikuhlaupi. 10.5.2024 20:09