Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Hvorki Halla Tómadóttir né forstjóri Brimborgar hafa gefið upp hversu mikinn afslátt tilvonandi forsetahjón fengu þegar þau keyptu bíl af umboðinu. Sölumaður umboðsins kallar afsláttinn hins vegar skyldmennakjör. Sérfræðingur í siðfræði segir mikilvægt að fullkomið gagnsæi ríki í málinu. Greiði fyrir greiða sé ekki við hæfi forseta Íslands. 27.7.2024 11:41
Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Lögreglan er búin að finna manninn sem elti konu í nótt og beraði kynfæri sín fyrir henni. 27.7.2024 11:40
Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Dómsmálaráðherra vonast til að geta lagt fram frumvarp sem tekur á reglum um erlendar veðmálasíður í haust. Talsmaður fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu segir að Coolbet hafi óskað eftir samstarfi sem var slitið í gær. 27.7.2024 09:03
Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Sífellt fleiri fíkniefnasalar selja eiturlyf fyrir opnum tjöldum á samfélagsmiðlum og bjóðast jafnvel til að keyra efnin heim til fólks. Fimm eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um að nota slíkar söluaðferðir. Yfirlögregluþjónn segir málið umfangsmikið en næstum tuttugu kíló af efnum fundust við húsleit. 26.7.2024 18:20
Milljarðs tap Play og götulist í Hafnarfirði Forstjóri Play segir stöðu flugfélagsins trausta þrátt fyrir tap upp á rúman milljarð á öðrum ársfjórðungi. Hann gefur lítið fyrir vangaveltur um mögulega sameiningu Play og Icelandair og segir engar meiriháttar uppsagnir í uppsiglingu. 25.7.2024 18:17
„Það er svolítill vælukjóatónn í honum“ Borgarfulltrúi hefur áhyggjur af því að Joe Biden, Bandaríkjaforseti hafi ekki þrek til að klára síðustu mánuðina í embætti, svo veiklulegur hafi hann verið í ávarpi sínu til þjóðarinnar í gær. 25.7.2024 15:07
Hættustig almannavarna og sögulegt ávarp Netanjahú Hættustig almannavarna var virkjað í dag vegna yfirvofandi eldoss í grennd við Grindavík. Víðir Reynisson segir það áhyggjuefni að viðvörunartími styttist með hverju gosinu sem verður en telur þó öruggt að fólk sé í bænum að degi til. 24.7.2024 18:00
Verðbólga eykst og áfram rigning í kortunum Verðbólga tók nokkuð óvæntan kipp upp á við í júlí. Hagfræðingur telur það geta haft talsverð áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, sem verður kynnt í ágúst. 24.7.2024 11:47
„Það hefur í raun og veru ekkert sumar komið hjá okkur“ Það var sumar í tvo daga á Snæfellsnesi að sögn björgunarsveitarmanns á svæðinu þar sem gular viðvaranir hafa verið í gildi. Tré rifnuðu upp með rótum á Þingeyri í gær og hjólhýsi fuku í Húnavatnssýslu. 14.7.2024 13:07
Dæmi um meintan hagsmunaárekstur við mat á sakhæfi Dæmi eru um að sömu geðlæknar leggi mat á sakhæfi einstaklinga fyrir dómstólum og sem sinna myndu þeim á réttargeðdeild. Þetta skapar óeðlilegan hagsmunaárekstur að mati formanns Afstöðu. Alvarlegt ástand ríki í geðheilbrigðismálum fanga. 13.7.2024 18:01