Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

350 milljóna tekjur Þing­valla í húfi vegna náttúrupassa

Verði drög um náttúrupassa að lögum missir þjóðgarðurinn á Þingvöllum bílastæðagjöldin sem hingað til hafa runnið beint til reksturs hans. Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður vill að fjárveitingar til garðsins taki mið af fjölda ferðamanna. Hann segist heldur ekki vita hvort kannað hafi verið hvernig passinn gæti haft áhrif á komur að Gullna hringnum.

Launa­hækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu

Stýrivextir gætu hækkað frekar ef næstu kjarasamningar leiða til meiri launahækkana, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Hann varar við því að miklar launahækkanir ofan í kólnandi hagkerfi og háa vexti geti orðið upphafið að harðri lendingu.

Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður

Lagt er til að árspassi að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum kosti 4.500 krónur samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðuneytisins. Lægra gjald, 3.000 krónur, verði í boði fyrir heimsóknir frá 1. nóvember til og með 31. maí árið eftir. Fólk með skattalega heimilisfesti á Íslandi fái passann ókeypis.

Hefja at­hugun á fjár­hags­að­stoð Reykja­víkur­borgar

Mikilvægt er að vinnufært fólk festist ekki á fjárhagsaðstoð og komist aftur út á vinnumarkað, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún styður athugun endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar á aðstoðinni, þar sem meðal annars er óskað eftir upplýsingum um þjóðerni þeirra sem þiggja hana.

Leita lausnar áður en verk­fall hefst á mið­nætti

Samtöl eru í gangi í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair en engir formlegir samningafundir hafa verið boðaðir. Að óbreyttu hefst ótímabundið verkfall á miðnætti, aðfaranótt miðvikudagsins 23. september.

Litlu nær um peningana í Fljótagöng

Enn vantar skýr svör um framlag ríkisins til Fljótaganga að mati Stefáns Vagns Stefánssonar þingmanns. Hann spurði um fjárveitingu til ganganna en innviðaráðherra vísaði til heimildar til að leggja fé eða eignir í innviðafélagið, án þess að nefna fjárhæð.

Tekjur af fiski utan kvóta rúm­lega fjór­faldast á fimm árum

Vísbendingar eru um að útgerðir nýti sér reglur gegn brottkasti fisks til að hagnast, að mati atvinnuvegaráðuneytisins. Tekjur Verkefnasjóðs sjávarútvegsins hafa rúmlega fjórfaldast á fimm árum samhliða auknum löndunum á fiski sem ekki dregst frá kvóta skipanna.

Sjá meira