Asahláka og vatnavextir geti skapað hættu á vegum Á morgun munu skil ganga yfir landið með mildara lofti og mikilli eða talsverðri rigningu. Leysingar geta orðið miklar og vatn og krapi flætt yfir vegi þar sem frárennsli og niðurföll eru víða full af snjó. 18.3.2026 11:22
Alvarlegir annmarkar á brunavörnum á Stuðlum Rannsókn er sögð hafa leitt í ljós alvarlega annmarka á brunavörnum á meðferðarheimilinu Stuðlum. Þetta kemur fram í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á eldsvoða sem varð á Stuðlum í október árið 2024 þar sem piltur lét lífið. 18.3.2026 11:14
Spá óbreyttum stýrivöxtum Arion banki spáir því að stýrivextir verði óbreyttir eftir vaxtaákvörðunarfund peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands á morgun. Hagkerfið sé í talsverðri kólnun sem sjáist í samdrætti í nýjustu kortaveltutölum, auknu atvinnuleysi og verri atvinnuhorfum. 17.3.2026 11:47
Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Flutningstakmarkanir í raforkukerfinu kosta samfélagið árlega milljarða króna í vannýtta orku, skerðingar, rafmagnsleysi og glötuð atvinnu- og launatækifæri. Orkumálaráðherra segir það óþolandi sóun á náttúruvermætum að orka frá virkjunum sitji föst í stað þess að heimili og fyrirtæki um allt land geti nýtt hana. 14.3.2026 15:27
Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Hlaðvarpið Betri en flestir hefur litið dagsins ljós en mennirnir á bak við það eru þeir Halldór Halldórsson (Dóri DNA), Kjartan Atli Kjartansson og Daníel Ólafsson (Danni Deluxe) 12.3.2026 16:41
Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Forstjóri Sýnar vill skoða möguleika á að koma upp sjónvarpsinnviðafélagi sem yrði nokkurs konar samstarf á milli Sýnar, Símans og Ríkisútvarpsins þegar kemur að tæknilegum kostnaði sem fylgir sjónvarpsútsendingum 12.3.2026 14:02
Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Ómari Valdimarssyni lögmanni hefur verið gert að greiða pari tæpar þrjár milljónir króna í málskostnað vegna máls sem Ómar hafði höfðað gegn parinu en gerði kröfu um niðurfellingu málsins við aðalmeðferð sem fallist var á. 11.3.2026 14:51
Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Íslandsbanki spáir 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta við næstu vaxtaákvörðun þann 18. mars. Versnandi skammtímaverðbólguhorfur og hækkandi verðbólguvæntingar eru taldar af bankanum munu þar ríða baggamuninn þótt talsverðar líkur séu á óbreyttum vöxtum og hertri framsýnni leiðsögn. Vaxtalækkunarferli verði síðar á ferð en áður var búist við. 11.3.2026 13:12
Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir munu stofna óháðan borgarstjórnarflokk sem þau munu sitja í út kjörtímabilið. Þau munu þó líta á sig sem borgarfulltrúa Miðflokksins í ræðu og riti. Það liggur fyrir að Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins mun víkja þeim úr ráðum og nefndum. 11.3.2026 12:44
Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Það stefnir í talsverða spennu hjá Framsóknarflokknum í Garðabæ á laugardag þegar uppstillingarnefnd kynnir lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Eins og staðan er í dag er vitað til þess að tveir hafi boðið sig fram sem oddvita flokksins, Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi flokksins í Garðabæ, og Hlynur Bæringsson varamaður hennar. 11.3.2026 11:12