Framkvæmdastjóri Landverndar segir rök Sigmundar Davíðs óþolandi Framkvæmdastjóri Landverndar segir rök virkjanasinna hér á Íslandi, um að aukin álframleiðsla hér á landi minnki losun, algjörlega óþolandi. Þetta sagði framkvæmdastjórinn eftir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafði haldið þessu fram á landsfundi Miðflokksins. Þau mættust í Sprengisandi ásamt umhverfisráðherra. 15.8.2021 14:52
Ekki sé hægt að segja Afgönum að sjá um sig sjálfir Árni Arnþórsson, aðstoðarrektor American University of Afghanistan, segir gífurlega erfitt að geta ekkert gert fyrir samstarfsfólk sitt sem grátbiður hann um að bjarga sér því það veit að líf þess gæti endað á næstu dögum vegna uppgangs Talíbana í Afganistan. Umheimurinn geti ekki lokað augunum fyrir því sem er að henda í landinu. 14.8.2021 19:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld er rætt við sóttvarnalækni sem ætlar að bregðast skjótt við lýsi Landspítalinn yfir neyðarástandi. Hann mun strax leggja til harðari aðgerðir, en veit þó ekki hvernig ríkisstjórnin mun bregðast við því. 14.8.2021 18:22
Nálgast Kabúl óðfluga Alþjóðasamfélagið er uggandi vegna stórsóknar Talíbana í Afganistan. Þeir hafa umkringt höfuðborgina en þjóðir heimsins reyna hvað þær geta að koma fólki í burtu. 14.8.2021 14:03
Yfirráð Talíbana verði aldrei viðurkennd Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir framsókn Talíbana í Afganistan grafalvarlegt mál sem alþjóðasamfélagið verði að bregðast við. Neyðarstjórn Nató fundaði um stöðuna í dag en yfirráð Talíbana verða aldrei viðurkennd af bandalaginu. 13.8.2021 18:36
Lykillinn að árangri í hlaupum er að líða eins og maður hafi ekki gert neitt eftir æfingu Reykjavíkurmaraþonið fer fram laugardaginn 18. september og vafalaust margir sem hafa skráð sig til leiks og eru nú að velta fyrir sér hvernig sé best að æfa fyrir hlaupið. 13.8.2021 15:11
Fjöldi í sóttkví eftir að smit kom upp í sumarfrístund Öll börn í sumarfrístund Hörðuheima í Hörðuvallaskóla, sem voru í frístund síðastliðinn þriðjudag, þurfa að fara í sóttkví frá og með deginum í dag til og með þriðjudags, því börnin voru útsett fyrir smiti vegna kórónuveirunnar síðastliðinn þriðjudag. 13.8.2021 11:28
Hraðprófin komi ekki í veg fyrir sóttkví Sóttvarnalæknir segir ekki hafa verið tilefni til að létta á sóttvarnaaðgerðum miðað við fjölda smitaðra og með Landspítalinn á neyðarstigi. Stjórnvöld hafi því ekki haft annað val en að framlengja gildandi ráðstafanir um tvær vikur. 11.8.2021 11:53
„Langtímaáhrifin af Covid eru í fyrsta lagi svolítið ýkt“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segist hafa haldið sig frá líkamsræktarstöðvum á eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst og bóluefni stóð ekki til boða. Nú þegar hann hefur verið fullbólusettur reynir hann að fara daglega í líkamsræktarstöð. 11.8.2021 10:35
„Við erum ekki að horfa á pest sem við losum okkur við á skammri stundu“ Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir óbólusetta aldrei í meiri hættu gagnvart kórónuveirunni en í dag. Margir séu sýktir í samfélaginu án þess að vita af því. Veiran verði ekki stöðvuð en bólusetningin eigi að koma í veg fyrir slæmar afleiðingar hennar. 9.8.2021 18:32