Tveir handteknir vegna byrgispartísins í Noregi Lögregla í Noregi hefur handtekið tvo vegna partís sem haldið var í byrgi í höfuðborginni Osló um helgina og varð til þess að á þriðja tug manna var fluttur á sjúkrahús vegna eitrunar. 31.8.2020 12:11
Forsetaslagur framundan hjá Ungum Jafnaðarmönnum Forsetaslagur er framundan innan Ungra Jafnaðarmanna en Ragna Sigurðardóttir og Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson hafa bæði tilkynnt um framboð. 31.8.2020 11:34
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með virkt kórónuveirusmit síðasta sólarhringinn hér á landi. Þó greindust tveir með kórónuveirusmit á landamærunum, en bíða báðir mótefnamælingar. 31.8.2020 11:04
Jónas Gestur tekur við stjórnarformennsku hjá Deloitte Jónas Gestur Jónasson er nýr stjórnarformaður Deloitte á Íslandi en nokkrar breytingar verða á stjórnendateymi Deloitte núna um mánaðamótin. 31.8.2020 10:54
Rúmlega sextíu manns sagt upp hjá fyrirtæki í ferðaþjónustu Alls hefur 260 manns verið sagt upp í hópuppsögnum í ágústmánuði og síðasti dagur mánaðarins er ekki liðinn. 31.8.2020 10:34
Zaev aftur til valda eftir nauman kosningasigur Zoran Zaev tók aftur við embætti forsætisráðherra Norður-Makedóníu seint í gærkvöldi, sjö mánuðum eftir að hann sagði af sér vegna seinagangs í aðildarviðræðum landsins og Evópusambandsins. 31.8.2020 10:12
Fjöldi smitaðra í Bandaríkjunum nálgast nú sex milljónir Fjöldi þeirra sem smitast hafa af kórónuveirunni í Bandaríkjunum nálgast nú óðfluga sex milljón manna markið, en uppsveifla er í miðvesturríkjum landsins þessa dagana. 31.8.2020 09:28
Guðmundur Íslandsmeistari í þriðja sinn Guðmundur Kjartansson varð í gær Íslandsmeistari í skák í þriðja sinn þegar mótinu lauk í Álftanesskóla. 31.8.2020 07:52
Ítrekað skorið í hesta á víðavangi í skjóli myrkurs Lögreglan í Varberg á vesturströnd Svíþjóðar glímir nú við óhugnanleg mál en svo virðist sem einhver, eða einhverjir, geri sér það að leik að skera hesta úti á víðavangi í skjóli myrkurs. 31.8.2020 07:40
Taka upp óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Óundirbúnar fyrirspurnir verða á dagskrá næstu funda borgarstjórnar Reykjavíkur. Um tilraunaverkefni er að ræða þar sem liðurinn verður á dagskrá í upphafi sex funda fram til áramóta. 31.8.2020 07:33