Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Gary Glitter, fyrrverandi poppstjarna og dæmdur barnaníðingur, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þrettán ára stúlku. Meintu brotin ná aftur til ársins 1978. Glitter var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 2015 fyrir að brjóta á stúlkum, átta til þrettán ára. 2.7.2026 14:44
Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Viðræðum EFTA ríkjanna um gerð fríverslunarsamnings við Víetnam er lokið. Samkomulag náðist milli ríkjanna á nýafstöðnum ráðherrafundi EFTA sem fór fram þann 22. júní síðastliðinn í Reykjavík. 2.7.2026 13:54
Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir tilkynningum um vasaþjófnað hafa fjölgað síðastliðna daga og vikur og segir þjófnaðinn vera „þaulskipulögð brotastarfsemi“ brotahópa sem koma til landsins. Lögreglan á Suðurlandi hefur gripið til aukinna aðgerða vegna viðvarandi vasaþjófa á helstu ferðamannastöðum. Meðal annars sinni ómerktir lögreglumenn eftirliti. 2.7.2026 12:55
Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður MAST hefur fengið ábendingar um einstakling sem fór á milli hesthúsa á Suðurlandi og villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður stofnunarinnar. 2.7.2026 12:15
Drangar kaupa Brauð & Co Drangar hafa gengið frá kaupum á Brauð & Co, einni þekktustu bakarískeðju landsins. 2.7.2026 09:49
Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Innviðafélag stofnað í samræmi við lög um innviðafélag sem samþykkt voru á Alþingi 18. júní síðastliðinn hefur hlotið nafnið Göng og brú ohf. 1.7.2026 15:30
Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli. 1.7.2026 14:08
Kanada tekur þátt í Eurovision Kanada tekur þátt í 71. Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2027 sem haldin verður í Búlgaríu. 1.7.2026 14:06
Mango opnar í Kringlunni Verslun spænska tískuvörumerkisins Mango var opnuð á laugardaginn í Kringlunni. 1.7.2026 11:20
Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Mótmæli voru haldin í Suður-Afríku í gær víðs vegar um landið. Mótmælendur krefjast þess að óskráðir innflytjendur séu látnir yfirgefa landið en mótmælendahópar settu fram óformlegan „frest“ fyrir óskráða innflytjendur til þess að yfirgefa landið í síðasta mánuði. „Herferð“ þeirra gegn innflytjendum í landinu hefur leitt til þess að tugþúsundir hafa flúið öryggis síns vegna. 1.7.2026 11:09