Spilar með tilfinningum sínum: „Næst kýlir maður með vinstri“ Tryggvi Garðar Jónsson, tvöfaldur meistari með Fram í handboltanum er á leið út í atvinnumennsku. Tímabilið hjá honum var ekki allt eins og blómstrið eina, Tryggvi spilar með tilfinningum sínum, þær leiða hann stundum í gönur en aftra því þó ekki að hann vinni titla. 4.6.2025 09:30
„Ég held það vilji enginn upplifa svona aftur“ Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings Reykjavíkur, segir tapið í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra gegn Breiðabliki ekki ofarlega í huga fyrir stórleik liðanna í kvöld í Bestu deildinni. Hins vegar geti menn nýtt sér tilfinningarnar frá því kvöldi, muna hvernig þeim leið og mæta klárir í hörku leik. 1.6.2025 12:01
Sævar hundeltur af blaðamönnum í Danmörku og Noregi Sævar Atli Magnússon vildi taka næsta skref á sínum ferli og úr varð að hann samdi við norska stórliðið Brann. Hann komst fljótt að því hversu fótboltasjúkt samfélagið í kringum félagið er. 1.6.2025 10:01
Kolbeinn er WBF heimsmeistari Íslenski atvinnumaðurinn í hnefaleikum, Kolbeinn Kristinsson, tryggði sér í kvöld WBF heimsmeistarabeltið í hnefaleikum með sigri á Mike Lehnis í Nürnberg. 31.5.2025 22:20
Dagur Dan kallaður inn í íslenska landsliðið Dagur Dan Þórhallsson, leikmaður Orlando í Bandaríkjunum, hefur verið kallaður inn í landsliðshóp íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir komandi leiki liðsins gegn Skotlandi og Norður-Írlandi. Bjarki Steinn Bjarkason er meiddur og þurfti að draga sig úr hópnum. 31.5.2025 09:44
Leikdagur í Munchen: Gummi Ben og Kjartan hita upp fyrir stærsta leik ársins Paris Saint Germain og Inter Milan mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á Allianz Arena í Munchen í kvöld. Þar eru Guðmundur Benediktsson og Kjartan Henry Finnbogason staddir og munu lýsa herlegheitunum þaðan í kvöld. 31.5.2025 09:01
Bindur vonir við nýja manninn: „Ekki með svona leikmann í liðinu í dag“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Bestu deildar liðs KR, bindur miklar vonir við nýjan leikmann liðsins, Amin Cosic, sem má spila með KR þegar að félagsskiptaglugginn opnar að nýju hér heima. 30.5.2025 15:48
Samstarf HSÍ og Rapyd heyrir sögunni til Handknattleikssamband Íslands og Rapyd hafa komist að samkomulagi um að samstarfi félaganna ljúki þann 1.september næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSÍ, mánuði eftir að leikmenn landsliðsins huldu merki fyrirtækisins á treyjum sínum. 30.5.2025 14:19
Hamilton segir sögusagnir um ósætti vera þvaður Sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lewis Hamilton, ökuþór Ferrari, gefur lítið fyrir sögusagnir sem birst hafa í fjölmiðlum um meint ósætti hans og aðal samstarfsmann hans hjá ítalska risanum, Riccardo Adami. 30.5.2025 11:02
Skrifar undir fimm ára samning við Liverpool Englandsmeistarar Liverpool hafa fyllt upp í skarðið sem að Trent Alexander-Arnold skyldi eftir sig. Jeremie Frimpong hefur skrifað undir fimm ára samning í Bítlaborginni og kemur frá Bayer Leverkusen. 30.5.2025 10:01