Hrottalegu ofbeldi lýst í ákæru á hendur Stefáni, Lúkasi og Matthíasi Þeir Stefán Blackburn, Lúkas Geir Ingvarsson og Matthías Björn Erlingsson hafa verið ákærðir fyrir manndráp í Gufunessmálinu svokallaða. Í ákærunni er hrottalegu ofbeldi mannanna í garð karlmanns á sjötugsaldri lýst. Þeir hafi til að mynda brotið fimm tennur í manninum eftir að hafa numið hann á brott frá heimili hans. 4.6.2025 16:06
Krefur Ríkisútvarpið um leiðréttingu Björgólfur Thor Björgólfsson hefur sent Ríkisútvarpinu formlega beiðni um leiðréttingu á meintum rangfærslum sem voru viðhafðar í þætti Kveiks á RÚV þann 29. apríl síðastliðinn, og hafi síðan verið endurteknar í öðrum miðlum. 4.6.2025 12:43
Ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán Ákærur fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán á hendur þremur sakborningum í Gufunessmálinu svokallaða voru lagðar fram í þinghaldi í morgun, þar sem farið var yfir áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur þeirra. Ekki þurfti að fara fram á varðhald yfir þeim þriðja, þar sem hann afplánar nú eldri refsingu. Karl og kona eru einnig ákærð í málinu. 4.6.2025 11:27
Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Þann 1. júní voru laun ríkisstarfsmanna vegna maímánaðar greidd út en launakostnaður ríkisins var um 25 milljarðar. 4.6.2025 10:43
Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Tekjur Isavia af innheimtu bílastæðagjalda við innanlandsflugvelli námu 78 milljónum króna í fyrra og kostnaður af henni nam 74 milljónum. Inni í þeirri tölu er þó stofnkostnaður og Isavia segir innleiðingu gjaldtökunnar heilt á litið hafa gengið vel. 3.6.2025 21:03
Þungir dómar fyrir að smygla fleiri lítrum af kókaíni Karl og kona hafa hlotið 4,5 ára fangelsisdóma fyrir að flytja inn samtals 8,4 lítra af kókaínbasa með flugi frá Mílanó á Ítalíu. 3.6.2025 16:47
Gæsluvarðhald framlengt aftur Gæsluvarðhald yfir konu á þrítugsaldri, sem grunuð er um að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra í Garðabæ, hefur verið framlengt um fjórar vikur, til 1. júlí, á grundvelli almannahagsmuna. 3.6.2025 14:30
Varð undir bílhræi ofan í járntætara og fær 150 milljónir Litáískur karlmaður á þrítugsaldri bar sigur úr býtum í rimmu við Sjóvá vegna uppgjörs bóta fyrir dómi. Hann fær tæplega 150 milljónir króna í skaða- og miskabætur vegna alvarlegs vinnuslyss sem hann varð fyrir við störf í málmendurvinnslu. Hann glímir við hundrað prósenta varanlega örorku eftir slysið. 3.6.2025 11:50
Hvergi af baki dottinn og fer með áminninguna fyrir Landsrétt Lögmaðurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Höskuldur Þór Þórhallsson ætlar ekki að sætta sig við að sitja uppi með áminningu sem Úrskurðarnefnd lögmanna veitti honum vegna ágreinings um skipti dánarbús. Hann ætlar með málið fyrir Landsrétt og eftir atvikum alla leið í Hæstarétt. 2.6.2025 16:51
Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna frá og með klukkan 18 í kvöld, vegna norðanáhlaups sem spáð er næsta sólarhringinn. 2.6.2025 16:10