Lið Björgvins Karls komið upp í þriðja sætið Björgvin Karl Guðmundsson og félagar í Crossfit Oslo Kriger fóru upp í þriðja sæti heimsleikanna í CrossFit eftir þriðja keppnisdaginn. Bergrós Björnsdóttir náði einnig að hækka á stigatöflunni en íslenska liðið Crossfit Reykjavík átti ekki góðan dag í gær. 26.7.2026 09:31
Guðrún skoraði þegar Hammarby komst á topp deildarinnar Íslendingaliðin Norrköping og Hammarby mættust í sænsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta í dag. Guðrún Arnardóttir náði að koma Hammarby í forystuna en Sigdís Eva Bárðardóttir fékk ekki að koma inn á fyrir Norrköping. 25.7.2026 16:36
Kristiansund komið í fallsæti eftir að Júlíus Mar fékk rautt Kristiansund tapaði gegn IK Start í norsku úrvalsdeildinni í dag 2-1. Kristiansund varð einum manni færri eftir að Júlíus Mar Júlíusson fékk að líta rauða spjaldið. 25.7.2026 16:09
Varði Íslandsmeistaratitilinn en náði ekki að bæta metið Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir varð Íslandsmeistari í sleggjukasti kvenna í dag. Hún hefur verið í harðri baráttu við Elísabetu Rut Rúnarsdóttur um Íslandsmetið í sleggjukasti. 25.7.2026 15:40
Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Lando Norris keyrði hraðast allra í tímatökum fyrir ungverska kappaksturinn í dag. Hann mun því byrja keppnina á morgun fremstur með báða Ferrari-ökumennina fyrir aftan sig. 25.7.2026 15:23
Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði að LeBron James gæti verið kynþáttahatari þegar hann var spurður hver honum fyndist vera besti körfuboltamaður allra tíma. 25.7.2026 14:30
Lærisveinar Tinnu rétt misstu af úrslitum Thom Gicquel og Delphine Delrue, lærisveinar Tinnu H. Ludvigsen, rétt misstu af úrslitaleik Opna kínverska mótsins í badminton. Tvenndarleiksparið rétt tapaði fyrir kínversku pari sem er efst á styrkleikalista Alþjóðabadmintonsambandsins. 25.7.2026 13:46
Fór snemma út af í jafntefli við nýliðana Brøndby og Midtjylland gerðu 1-1 jafntefli í dönsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta í dag. Í dag fer fram fyrsta umferð deildarinnar á þessu tímabili og þurfti Hafrún Rakel Halldórsdóttir að fara út af í hálfleik. 25.7.2026 13:04
Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Jannik Sinner og Novak Djokovic hafa báðir dregið sig úr keppni á opna kanadíska mótinu í tennis. Ástæðan fyrir því er að þeir þurfa að setja heilsuna sína í forgang. 25.7.2026 12:15
Hljóp á hraðasta tíma ársins Noah Lyles hljóp á hraðasta tíma ársins í 100 metra spretthlaupi karla og vann bandaríska meistaramótið í spretthlaupi. 25.7.2026 11:31