Veitingastaðir

Veitingastaðir

Fréttir af starfsemi veitingastaða á Íslandi.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gul við­vörun hjá öllum og fjöru­tíu pró­sent á rauðu

„Það er gul viðvörun á öllum en kannski svona 30 til 40 prósent eru á rauðu.“ Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) aðspurður hversu mörg veitingahús á höfuðborgarsvæðinu hann telji vera í hættu. Verðlagshækkanir, há leiga, síðustu kjarasamningar og lán vegna heimsfaraldursins séu meðal þess sem plagi veitingafólk.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Áfengisgjaldið tvö­falt hærra en veiðigjaldið en varla rætt

Steinþór Helgi Arnsteinsson, einn eigenda Röntgens, Skreiðar og Bullseye í Austurbæjarbíói, segir áfengisgjöldin komin langt úr hófi og eiga stóran þátt í háu verði á börum.„Þessi áfengisskattur er kominn út í algjört rugl,“ segir Steinþór í hlaðvarpinu Eftirvaktinni, þar sem fjallað er um veitinga- og skemmtanabransann á Íslandi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kominn með nóg af tíma­setningu lög­reglu

Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði segja það vekja furðu að lögreglan hafi ráðist í aðgerðir á skemmtistöðum á háannatíma sem leiddu til þess að þremur stöðum var lokað síðustu nótt. Samtökin geri ekki athugasemdir við sakargiftirnar en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum, að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Stefna á að opna kaffi­stofuna síðar í þessum mánuði

Vinna úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er á lokastigi hvað varðar kærur frá íbúum vegna málsmeðferðar Reykjavíkurborgar á flutningi Kaffistofu Samhjálpar á Grensásveg 46. Nefndin sér fram á að ljúka sinni vinnu fyrir mánaðamót en Samhjálp stefnir á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Turninn á Lækjar­torgi fær nýtt líf

Söluturninn á Lækjartorgi fær nýtt líf í næstu viku en til stendur að opna þar ísbúðina Ísfabrikkuna. Nýir eigendur stefna á að framleiða og selja „fyrsta flokks ís úr alvöru hráefnum“ en einnig verður boðið upp á kaffi til sölu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg

Nokkur fjöldi þekktra kanóna úr íslensku samfélagi ætlar að opna nýtt kaffihús í vesturbæ Reykjavíkur þar sem verslunin Kjötborg verður til húsa þar til síðar í mánuðinum. Einn verðandi eigenda segir að um sé að ræða vinahóp sem hafi lengi haft þá hugmynd að tryggja að eitthvað yrði um að vera í húsnæðinu ef Kjötborg myndi loka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Allir héldu Michelin-stjörnunni

Allir þrír staðirnir hérlendis sem hafa skartað hinni eftirsóttu Michelin-stjörnu halda henni á milli ára. Óx hlaut ekki græna stjörnu að þessu sinni en Lóla bætist á lista veitingastaða sem Michelin mælir með.

Lífið
Fréttamynd

„Sögu­legt augna­blik“ fyrir þýska klúbba­menningu

Stjórnvöld í Þýskalandi hafa gert breytingar á byggingarreglugerðum þannig að næturklúbbar séu flokkaðir með öðrum hætti en aðrir afþreyingarstaðir fyrir fullorðna. Rekstraraðilar fagna breytingunni en óttast sumir að hún komi of seint. 

Lífið
Fréttamynd

Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5

Sverri Einari Eiríkssyni hefur verið gert að greiða fimm hundruð þúsund króna sekt úr eigin vasa vegna notkunar B Reykjavík ehf. á vörumerkinu b5. Félagið sjálft þurfti að greiða hálfa milljón vegna noktunnarinnar en vörumerkið er í eigu KG ehf.

Innlent
Fréttamynd

Ár í eld­línunni

Um þessar mundir er ár síðan ég tók við starfi framkvæmdastjóra Sveitar. Það hefur verið sérstakt ár — ekki bara fyrir mig persónulega heldur fyrir veitingageirann allan.

Skoðun
Fréttamynd

María nýr stjórnar­for­maður SVEIT

María Hjaltadóttir, einn eigenda Finnsson í Kringlunni, hefur verið kjörin nýr formaður stjórnar SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði. Með kjöri hennar tekur við formaður með áratuga reynslu úr íslenskum veitingarekstri, markaðsmálum og þjónustugreinum að því er segir í tilkynningu frá SVEIT.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Með eina þriggja mánaða í vinnunni

Ungt par sem tók nýlega við rekstri veitingastaðarins á Skriðuklaustri býður upp á strangheiðarlegan íslenskan mat og segir móttökurnar hafa verið vonum framar. Þriggja mánaða dóttirin sem mætir með þeim á vaktina unir sér vel.

Lífið
Fréttamynd

Síðustu kaffi­húsum Kaffi­társ lokað

Eigendur Kaffitárs hafa ákveðið að loka kaffihúsum fyrirtækisins í Kringlunni og Háskólanum í Reykjavík, síðustu tveimur kaffihúsum Kaffitárs. Þar með lýkur 31 árs sögu kaffihúsanna en Kaffitár mun þó halda áfram kaffibrennslu og annarri starfsemi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segja borgar­yfir­völd hafa brugðist í­búum al­gjör­lega

Íbúar í hverfi 108 lýstu á íbúafundi í gær yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Reykjavíkurborgar um að heimila staðsetningu Kaffistofu Samhjálpar á Grensásvegi. Um 200 íbúar samþykktu ályktun gegn flutningi kaffistofunnar og vilja að henni verði fundin hentugri staðsetning. 

Innlent
Fréttamynd

Í­búar funda aftur um stöðu Kaffi­stofunnar

Hópur íbúa í hverfi 108 hefur boðað til opins íbúafundur í kvöld til að ræða stöðu Kaffistofu Samhjálpar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði nýlega kröfur þeirra um að stöðva framkvæmdir á meðan nefndin fjallar um stjórnsýslukæru íbúanna. Til stendur að opna Kaffistofuna í húsnæði við Grensásveg 46. 

Innlent
Fréttamynd

Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame

Hæstiréttur hafnaði beiðni stéttarfélagsins Matvís um að áfrýja dómi  um að það væri skaðabótaskylt gagnvart eigendum veitingastaðarins Flame. Ummæli starfsmanna Matvís við eftirlitsferð var talið hafa leitt til þess að hópur starfsfólks gekk út af vinnustaðnum.

Innlent
Fréttamynd

Kokka­konur „kjafta, skála og knúsa“ í nýjum sam­tökum

Fjórir kvenkyns matreiðslumeistarar hafa stofnað nýtt félag, Kokkakonur, fyrir konur í matreiðslubransanum. Þær segja konur í þessum karllæga heimi deila reynslu og það sé gott að hafa sameiginlegan vettvang til að geta talað opinskátt um þeirra reynslu og upplifun. Þær sjá fyrir sér að halda fundi en ætla einnig að „kjafta, skála og knúsa og eiga skemmtilegar stundir“.

Matur
Fréttamynd

Bílastæðamálin fæli fólk frá mið­borginni

Umsvifamiklir veitingamenn í miðborg Reykjavíkur segja núverandi fyrirkomulag bílastæðamála gera fólki erfiðara fyrir að sækja miðbæinn og grafa undan rekstri á svæðinu. Þeir kalla eftir því að hætt verði að rukka fyrir bílastæði á kvöldin og um helgar og segja að ef stæðum sé lokað verði það að skila einhverju sem bæti miðborgina.

Innlent