ESB til Taívana: „Þið eruð ekki ein“ Fyrsta opinbera sendinefnd Evrópuþingsins til Taívan tilkynnti ráðamönnum þar að íbúar eyríkisins stæðu ekki einir gegn sífellt auknum þrýstingi frá Kína. Taívanar leita bandamanna um víða veröld. Erlent 4. nóvember 2021 13:16
Sigldu á óþekkt neðansjávarfjall Kafbátnum USS Connecticut var siglt á neðansjávarfjall sem hafði aldrei verið kortlagt. Minnst tólf sjóliðar slösuðust og kjarnorkukafbáturinn skemmdist töluvert þegar honum var siglt á fjallið í grennd við Suður-Kínahaf í upphafi síðasta mánaðar. Erlent 2. nóvember 2021 12:19
Líkti tilraunum Kínverja við geimskot Spútnik á árum áður Formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna segir fregnir af tilraunum Kínverja með sérstakar eldflaugar vera mikið áhyggjuefni. Líkti hann tilraununum við það þegar Sovétríkin skutu gervihnettinum Spútnik á loft. Erlent 27. október 2021 13:01
Biden segir Bandaríkin munu verja Taívan fyrir innrás Joe Biden Bandaríkjaforseti segir ljóst að Bandaríkjamenn muni verja eyjuna Taívan, ef Kínverjar gera innrás. Þetta kom fram í svörum hans á borgarafundi sem CNN sjónvarpsstöðin stóð fyrir. Erlent 22. október 2021 06:38
Á þriðja tug látinn í miklum eldsvoða í Taívan Að minnsta kosti tuttugu og fimm eru látnir eftir mikinn eldsvoða í þrettán hæða blokk í sunnanverðu Taívan í nótt. Yfirvöld búast við því að tala látinna eigi eftir að hækka enn frekar. Erlent 14. október 2021 08:13
Æfðu að lenda hermönnum á strönd skammt frá Taívan Her Kína hélt nýverið æfingar í að lenda hermönnum af sjó. Þær æfingar voru gerðar í héraðinu sem er andspænis Taívan. Æfingarnar hafa þó ekki verið beintengdar mjög aukinni spennu milli Kína og Taívans. Erlent 12. október 2021 15:06
Segir enga geta þvingað Taívan til sameiningar Tsai Ing-wen, forseti Taívan, hét því fyrr í dag, á þjóðhátíðardegi landsins, að halda áfram varnaruppbyggingu í skugga ógnar frá Kína. Erlent 10. október 2021 07:30
Heitir því að Taívan verði sameinað Kína á ný Xi Jinping forseti Kína hefur heitið því að Taívan muni „sameinast“ Alþýðulýðveldinu Kína að nýju. Forsetinn sagðist í dag, laugardag, vona að sameiningin takist án þess að beita þurfi valdi. Erlent 9. október 2021 07:55
Kínverjar fámálir um fregnir af bandarískum hermönnum í Taívan Kínverjar kölluðu eftir því í morgun eftir því að Bandaríkin slitu hernaðarleg tengsl sín við Taívan. Það er eftir fréttaflutning um að bandarískir landgönguliðar og sérveitarmenn hafi verið staðsettir á Taívan í meira en ár. Erlent 8. október 2021 10:22
Taívanar leitast eftir stuðningi Ráðamenn í Taívan leitast nú eftir stuðningi frá öðrum lýðræðisríkjum á heimsvísu en Kínverjar hafa beitt eyríkið miklum þrýstingi undanfarin misseri, bæði pólitískum og hernaðarlegum. Erlent 7. október 2021 10:25
Samskipti Kína og Tævan ekki jafn slæm í 40 ár Varnarmálaráðherra Taívan segir að samskipti eyríkisins við Kína hafi ekki verið jafnslæm og þau eru nú í 40 ár. Ráðherrann, Chiu Kuo-cheng, segir að Kínverjar verði í stakk búnir til að ráðast á eyjuna og taka hafa yfir árið 2025. Erlent 6. október 2021 07:50
Taívan sakar Kína um yfirgang eftir að metfjölda flugvéla var flogið inn á loftvarnasvæði ríkisins Kínverjar flugu fjölda orrustuþota og sprengjuflugvéla inn í loftvarnasvæði Taívans í morgun. Fleiri flugvélum hefur aldrei verið flogið inn í loftvarnasvæðið en spennan milli Kína og Taívans hefur aukist til muna á undanförnum árum. Erlent 2. október 2021 10:07
Frakkar reiðir og líkja Biden við Trump Ráðamenn í Frakklandi hafa brugðist reiðir við eftir að varnarsamstarf Bandaríkjanna, Ástralíu og Bretlands í Kyrrahafinu var opinberað í gær. Tilkynnt var að Ástralar myndu kaupa átta kjarnorkuknúna kafbáta af Bandaríkjunum en samhliða því slitu yfirvöld í Ástralíu stórum samningi við franskt fyrirtæki um kaup á nýjum flota dísel-kafbáta. Erlent 16. september 2021 16:02
Taívanar kvarta yfir umferð kínverskra herþota Yfirvöld í Taívan segja að nítján kínverskar herþotur hafi flogið inn fyrir skilgreint varnarsvæði Taívans í gær. Varnamálaráðuneyti landsins segir að þeirra á meðal hafi verið orrustuþotur og sprengjuflugvélar sem borið geti kjarnorkusprengjur. Erlent 6. september 2021 06:55
Gætu lamað varnir Taívans í skyndi Kínverjar vita nákvæmlega hvar varnir Taívans eru og gætu lamað þær á skömmum tíma. Með umfangsmiklum netárásum, í sambland við eldflaugaárásir og laumuárásir sérsveitarmanna á mikilvæga innviði, væri hægt að draga verulega úr varnargetu Taívans. Erlent 1. september 2021 23:01
Hefja notkun á heimalöguðu bóluefni Forseti Taívans reið á vaðið í dag og var á meðal þeirra fyrstu sem fengu nýtt innlent bóluefni gegn kórónuveirunni. Gagnrýnisraddir eru þó uppi um að notkun efnisins hafi verið samþykkt of hratt. Erlent 23. ágúst 2021 13:11
Aflífun 154 katta vekur sorg og reiði í Taívan Mikil reiði greip um sig á samfélagsmiðlum í Taívan eftir að yfirvöld greindu frá því að 154 kettir hefðu verið aflífaðir eftir að þeir fundust á fiskibát. Um var að ræða hreinræktaða ketti sem smygla átti inn í landið. Erlent 23. ágúst 2021 07:20
Handtóku banamenn forsetans í sendiráði Taívan Lögregluyfirvöld á Haíti segjast hafa handtekið sautján málaliða sem tóku þátt í árásinni á forseta landsins á miðvikudag. Forsetinn, Jovenel Moise var skotinn til bana þegar hópur þungvopnaðra manna réðst á heimili hans. Erlent 9. júlí 2021 06:49
Segir að Japan muni aðstoða Taívan verði gerð innrás Taro Aso, aðstoðarforsætisráðherra Japans, segir nauðsynlegt fyrir Japani að koma Taívan til aðstoðar, auk Bandaríkjanna, geri Kínverjar innrás í eyríkið. Þetta sagði hann í gær og hafa ummælin þegar vakið mikla reiði í Peking. Erlent 6. júlí 2021 14:39
Taívanskur drengur sem varpað var 27 sinnum í gólfið á júdóæfingu látinn Sjö ára drengur, sem varpað var 27 sinnum í gólfið á júdóæfingu í Taívan í vor, er látinn. Foreldrar hans ákváðu að slökkva á öndunarvél hans, en hann hafði verið í dái í um sjötíu daga. Erlent 30. júní 2021 07:47
Taívan býr sig undir átök við Kína Joseph Wu, utanríkisráðherra Taívan, segir stjórnvöld þurfa að undirbúa sig undir möguleg hernaðarátök. Þetta sagði hann í viðtali við CNN en fyrir um viku síðan flugu 28 kínverskar herþotur og sprengjuflugvélar inn í lofthelgi landsins. Erlent 24. júní 2021 11:34
Telur Kínverja undirbúa innrás Utanríkisráðherra Taívans sagði í dag að útlit væri fyrir að Kínverjar væru að undirbúa innrás á eyjuna. Erlent 29. apríl 2021 17:30
Segja Bandaríkjunum að hætta að leika sér að eldi Ráðamenn í Kína hafa lýst heræfingum sínum nærri Taívan sem æfingum fyrir átök og varað Bandaríkjamenn við því að eiga í samskiptum við eyríkið. Bandarískir erindrekar eru staddir í Taívan í ferð sem Hvíta húsið segir ætlað að sýna stuðning Bandaríkjanna við ríkið. Erlent 14. apríl 2021 10:11
Tugir látnir og um tvö hundruð sitja föst eftir lestarslys Minnst 41 hefur látist og hátt í tvö hundruð eru föst í lestargöngum í Taívan eftir að hraðlest fór út af sporinu þar í gær. Tugir eru slasaðir og björgunarfólk reynir hvað það getur að komast að fólkinu. Erlent 2. apríl 2021 09:10
Fyrsti fundur Biden-liða og Kínverja fór ekki vel af stað Fyrsti fundur háttsettra embættismanna Bandaríkjanna og Kína fór harkalega af stað í Alaska í gærkvöldi. Báðar hliðar fóru hörðum orðum um hina fyrir framan myndavélar á viðburði sem við hefðbundnar aðstæður tekur einungis nokkrar mínútur en tók nú tæpa klukkustund. Erlent 19. mars 2021 10:47
Búast við mikilli aukningu fjárútláta til varnarmála Sérfræðingar búast við því að ráðamenn í Kína muni tilkynna töluverða hækkun á fjárútlátum til varnarmála í upphafi nýs þings í næsta mánuði. Hækkunin í fyrra var 6,6 prósent, sem var sú lægsta í áratugi. Erlent 26. febrúar 2021 15:46
Lýsir áhyggjum af viðbúnaði Kínverja Tsai Ing-wen, forseti Taívans, lýsti í dag áhyggjum af sífelldu flugi kínverska hersins nærri eyjunni og sagði það ógna öryggi á svæðinu. Erlent 9. febrúar 2021 16:00
Eins og nýjasti þátturinn í gamalli sjónvarpsseríu Stjórnvöld í Kína vara við stríði ef yfirvöld í Taívan sækja í átt að sjálfstæði. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir Kínverja vera að þreifa fyrir sér. Erlent 29. janúar 2021 20:00
„Sjálfstæði Taívans þýðir stríð“ Yfirvöld Kína hafa hert orðræðu sína gagnvart Taívan töluvert. Í dag varaði talsmaður varnarmálaráðuneytis Kína við því að ef ráðamenn í Taívan lýstu yfir sjálfstæði, þýddi það stríð milli ríkjanna. Erlent 28. janúar 2021 13:36
Halda heræfingar og vara við köldu stríði Yfirvöld í Kína opinberuðu í morgun að til stæði að halda heræfingar í Suður-Kínahafi í vikunni. Það er í kjölfar þess að Bandaríkjamenn sigldu flugmóðurskipi og öðrum herskipum í gegnum hafsvæðið umdeilda sem Kínverjar gera tilkall til. Þá varar Xi Jinping, forseti Kína, við nýju köldu stríði. Erlent 26. janúar 2021 11:51