Segir of snemmt að álykta um tengsl Christchurch og Sri Lanka Utanríkisráðherra Nýja Sjálands segir að hann þurfi að sjá sönnunargögn áður en hægt sé að fullyrða um hvort að hryðjuverkaárásirnar á Sri Lanka á páskadag hafi veri svar við hryðjuverkaárásunum í Christchurch á Nýja Sjálandi í mars. Erlent 23. apríl 2019 18:30
Nýja-Sjáland bannar einnota plastpoka Nýja-Sjáland hefur bæst í hóp þeirra landa sem hyggst banna einnota plastpoka með lögum, í von um að takast á við plastmengun. Erlent 22. apríl 2019 13:41
Burger King baðst afsökunar og fjarlægði rasíska auglýsingu Burger King þurfti að eyða auglýsingu sem talin er hafa verið rasísk en í henni sést fólk eiga í mestu vandræðum með að borða hamborgara með risastórum prjónum. Viðskipti erlent 9. apríl 2019 10:13
Gert að gangast undir geðrannsókn Dómari á Nýja-Sjálandi hefur skipað manninum, sem sakaður er um að hafa banað fimmtíu manns í Christchurch í síðasta mánuði, að gangast undir geðrannsókn. Erlent 4. apríl 2019 22:49
Yfirgnæfandi meirihluti með hertri vopnalöggjöf Alls greiddu 119 nýsjálenskir þingmenn atkvæði með frumvarpinu, en einn greiddi atkvæði gegn. Erlent 2. apríl 2019 10:12
Morðinginn í Christchurch kvartar undan illri meðferð í fangelsinu Maðurinn hefur verið ákærður fyrir eitt morð og á yfir höfði sér fleiri ákærur vegna árásarinnar í Christchurch. Erlent 30. mars 2019 23:15
Minntust fórnarlambanna í Christchurch Jacinda Ardern var viðstödd athöfnina og hélt ræðu ásamt leiðtogum múslimasamfélagsins og einum sem lifði árásina af. Erlent 29. mars 2019 08:26
Morðinginn í Christchurch gaf austurrískum öfgamönnum fé Ástralskur maður gaf leiðtoga öfgasamtaka andsnúnum innflytjendum í Austurríki jafnvirði um 200.000 króna. Erlent 28. mars 2019 13:19
Vilhjálmur prins heimsækir Nýja-Sjáland Vilhjálmur prins mun heimsækja Nýja-Sjáland í næsta mánuði til þess að heiðra minningu þeirra fimmtíu sem létust í hryðjuverkaárás í borginni Christchurch. Erlent 27. mars 2019 22:50
Fyrirskipar sjálfstæða rannsókn á hryðjuverkaárásinni Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur fyrirskipað sjálfstæða og óháða rannsóknarnefnd til að rýna í hryðjuverkaárásina í borginni Christchurch föstudaginn 15. mars. Erlent 25. mars 2019 12:28
Moskan opnuð á ný Al-Noor moskan í Cristchurch, vettvangur mannskæðasta hryðjuverks í sögu Nýja-Sjálands, var opnuð á ný í nótt Erlent 23. mars 2019 08:53
Ardern sýni hugrekki með byssubanni Þetta er gert í kjölfar hryðjuverkaárásar á tvær moskur í borginni Christchurch þar sem fimmtíu voru myrt. Erlent 22. mars 2019 07:30
Banna sölu hálfsjálfvirkra vopna strax Nýsjálendingar ætla að banna öll hálfsjálfvirk skotvopn og árásarriffla í kjölfar ódæðisins í Christchurch á dögunum. Erlent 21. mars 2019 07:52
Erdogan birti aftur myndband af árásinni í Christchurch Erdogan notaði myndbandið á kosningasamkomu til að fordæma það sem hann sagði vera aukið hatur og fordóma gagnvart íslam. Erlent 20. mars 2019 08:32
Hyggst aldrei nefna árásarmanninn á nafn Nýsjálenska forsætisráðherranum var tíðrætt um nauðsyn þess að hugsa og ræða fórnarlömb hryðjuverkaárásarinnar og aðstandendur þeirra. Erlent 19. mars 2019 10:46
Embætti ríkislögreglustjóra rannsakar ferðir hryðjuverkamanns um Ísland Embætti ríkislögreglustjóra vinnur nú að því að kortleggja ferðir Brentons Tarrant, ástralska karlmannsins sem ber ábyrgð á mannskæðustu hryðjuverkum í sögu Nýja-Sjálands, um Ísland. Hann er talinn hafa komið hingað til lands árið 2017 Innlent 18. mars 2019 17:31
Eyddu einni og hálfri milljón myndbanda af árásinni á Facebook Forsvarsmenn fyrirtækja á Nýja-Sjálandi íhuga að hætta að auglýsa á samfélagsmiðlum. Erlent 18. mars 2019 10:40
Kynna nýja og herta vopnalöggjöf á næstu dögum Ríkisstjórnin á Nýja Sjálandi hefur samþykkt fyrir sitt leiti nýja vopnalöggjöf í landinu eftir hryðjuverkið í Christchurch þar sem fimmtíu féllu fyrir hendi byssumanns sem vopnaður var hálfsjálfvirkum rifflum og haglabyssum. Erlent 18. mars 2019 07:54
Sagðist innblásinn af Anders Breivik Ástralski hryðjuverkamaðurinn sem myrti fimmtíu manns í mosku á Nýja-Sjálandi á föstudag vildi hefna 11 ára gamllar stúlku sem lést í hryðjuverkaárás í Stokkhólmi árið 2017. Erlent 18. mars 2019 07:00
Fjölskylda hryðjuverkamannsins í áfalli yfir illvirkinu Að minnsta kosti fimmtíu eru látnir eftir hryðjuverkaárásina í Christchurch. Erlent 17. mars 2019 20:00
Nýsjálenskum flugvelli lokað vegna grunsamlegs pakka Dunedin alþjóðaflugvellinum á Suðurey Nýja-Sjálands var lokað í dag vegna grunsamlegs pakka sem fannst á flugvellinum. Lögregla var á staðnum og fjarlægði pakkann grunsamlega. Erlent 17. mars 2019 11:16
Talið að Ísland hafi verið einn af viðkomustöðum hryðjuverkamannsins Brenton Tarrant, ástralski hryðjuverkamaðurinn sem ber ábyrgð mannskæðustu hryðjuverkum í sögu Nýja-Sjálands, segist hafa komið til Íslands í Evrópureisu sem hann fór í fyrir tveimur árum. Marie Fitzgerald, amma Tarrants, segir þessa Evrópuferð hafa breytt honum. Innlent 17. mars 2019 10:45
Fjöldi fórnarlamba flóttafólk sem taldi sig hafa fundið sinn griðastað Nýsjálenska lögreglan hefur nú staðfest andlát 50 fórnarlamba hryðjuverkaárásarinnar í Christchurch í Nýja-Sjálandi. Lögreglustjórinn í Christchurch, Mike Bush, segir í samtali við BBC að enn sé unnið að því að úrskurða dánarorsök hvers fyrir sig. Erlent 17. mars 2019 10:10
Fórnarlömb hryðjuverkaárásarinnar í Nýja-Sjálandi fimmtíu talsins Fórnarlömb hryðjuverkaárásarinnar í Nýja-Sjálandi eru nú orðin fimmtíu talsins. Erlent 17. mars 2019 07:36
Breska konungsfjölskyldan um hryðjuverkin í Nýja-Sjálandi: „Engin manneskja ætti að óttast að sækja helgistað“ Hertogahjónin af Camebridge og Sussex hafa vottað aðstandendum fórnarlamba hryðjuverkanna í Nýja-Sjálandi samúð sína . Erlent 16. mars 2019 16:31
Barst stefnuyfirlýsing hryðjuverkamannsins í tölvupósti Nokkrum mínútum áður en hryðjuverkamaðurinn Brenton Tarrant lét til skarar skríða og myrti 49 manns í tveimur moskum í borginni Christchuch í Nýja-Sjálandi sendi hann tölvupóst til Jacindu Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, með stefnuyfirlýsingu (e. manifesto) sinni. Erlent 16. mars 2019 14:13
Þingmaðurinn sem kenndi múslimum um hryðjuverkaárásina fékk egg í höfuðið Fraser Anning, ástralski öldungadeildarþingmaðurinn umdeildi, sem í gær kenndi múslimum sjálfum og innflytjendastefnu Nýja-Sjálands um hryðjuverkin var á blaðamannafundi í dag grýttur eggi þegar hann hafði í frammi frekari áróður gegn múslimum. Erlent 16. mars 2019 10:30
Hryðjuverkamaðurinn leiddur fyrir dómara Hægri öfgamaðurinn sem myrti að minnsta kosti 49 manns í tveimur moskum í borginni Christchurch í Nýja-Sjálandi var að morgni laugardags að staðartíma leiddur fyrir dómara þar sem honum var gerð grein fyrir ákærum á hendur honum. Erlent 15. mars 2019 23:45
Maður á áttræðisaldri fyrstur fórnarlamba til að vera nafngreindur Hajji Daoud Nabi var formaður Afgana í Nýja-Sjálandi, en það eru samtök tileinkuð því að varðveita afganska menningu innan afganskra innflytjendasamfélaga og auðvelda innflytjendum að aðlagast samfélagi Nýja-Sjálands. Erlent 15. mars 2019 23:12
Forsætisráðherra Nýja-Sjálands: „Eitt er víst að byssulöggjöfin okkar mun taka breytingum“ Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, sagði á blaðamannafundi í Wellington í kvöld að það væri alveg á hreinu að byssulöggjöf landsins myndi taka breytingum eftir að versta fjöldamorð í sögu Nýja-Sjálands átti sér stað í dag. Erlent 15. mars 2019 22:54